Vöruhúsið að Álfabakka 2 sem reist var í garði íbúðabyggðar var ekki hannað af arkitekt.
Vöruhúsið að Álfabakka 2 sem reist var í garði íbúðabyggðar var ekki hannað af arkitekt.
Vöruhúsið að Álfabakka 2 sem reist var í garði íbúðabyggðar var ekki hannað af arkitekt.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Arkitektafélags Íslands.
Stjórn félagsins segir það á misskilningi byggt að arkitektar einir komi að mótun borgarumhverfisins.
Byggingafræðingar, byggingatæknifræðingar, verkfræðingar, landslagsarkitektar og fleiri koma að mótun borgarumhverfisins.
Aftur á móti eru arkitektar sérmenntaðir í að hanna út frá þörfum manneskjunnar á fagurfræðilegum grundvelli.
„Af umræðu síðustu daga um Álfabakka 2 má draga þann lærdóm að það er ekki sama hvernig heimildir í deiliskipulagi eru nýttar. Þótt eitthvað megi gera samkvæmt deiliskipulagi þýðir það ekki að það eigi að gera það.
Að hanna inn í umhverfi krefst næmni og skilnings á því hvernig byggja á borg, næmni og skilnings sem arkitektar hafa fengið menntun og þjálfun til að gera,“ segir í yfirlýsingu stjórnar.
Félagið segir ábyrgð á byggingu vöruhússins liggja víða. Mikilvægt er að setja íbúa, þarfir þeirra og samfélagsins í heild í forgang og skilyrði í skipulags- og byggingarreglugerð þess efnis.
„Að í reglugerðum sé fjallað sérstaklega um gæða arkitektúr, birtuskilyrði í íbúðum, sólarstundir á dvalarsvæðum og rými milli húsa í blandaðri byggð svo fátt eitt sé nefnt,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni.
Stjórn félagsins segir löggjafann, borgina, sveitarfélög ásamt skipulags- og byggingaryfirvöldum bera ábyrgð á því að móta rammana sem borgarumhverfið er hannað eftir og að framfylgja þeim.
„Hönnuðir bera ábyrgð á að hanna borgarumhverfi til framtíðar með gæði og velferð að leiðarljósi fyrir bæði íbúa og samfélag. Þannig græðum við öll.“