Viðræður strandríkja í London á mánudag og í gær á vettvangi Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC) um skiptingu hlutdeilda í makríl virðast ekki hafa skilað tilætluðum árangri og hefur norska atvinnu- og sjávarútvegsráðuneytið ákveðið að upphafskvóti norskra skipa í makríl vegna ársins 2025 verði 130 þúsund tonn.

Þessi upphafskvóti er 22,52% af þeim 576.958 tonna hámarksafla sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráðleggur á næsta ári.
„Á meðan enn eigi eftir að finna lausn á skiptingu (hlutdeilda) makríls, höfum við ákveðið upphafskvóta fyrir árið þannig að við tryggjum að sá hluti flotans sem byrjar snemma fái tækifæri til að hefja veiðar. Endanlegur kvóti verður ákveðinn vel áður en veiðar hefjast að fullu,“ segir Marianne Sivertsen Næss sjávarútvegs- og hafráðherra Noregs í tilkynningu á vef ráðuneytisins.
Síðastliðið sumar gerði Noregur, Færeyjar og Bretland samning sín á milli um skiptingu ígildi 72% ráðlagðs hámarksafla í makríl til þriggja ára. Evrópusambandið, Ísland og Grænland eru utan þessa samkomulags og gefa öll svokölluð strandríki út kvóta til sinna skipa sjálfstætt.
Fyrir árið 2024 nam ráðgjöf ICES 739.386 tonn, en ráðið gerir ráð fyrir að strandríkin veiði 954.112 tonn af makríl á árinu. Að óbreyttu verður einnig veitt umfram vísindalega ráðgjöf á næsta ári.