Bann yfirvofandi: Hæstiréttur skerst í leikinn

TikTok | 18. desember 2024

Bann yfirvofandi: Hæstiréttur skerst í leikinn

Hæstiréttur Bandaríkjanna mun úrskurða um það hvort að fyrirhugað bann við Tiktok í Bandaríkjunum standist stjórnarskrá Bandaríkjanna.

Bann yfirvofandi: Hæstiréttur skerst í leikinn

TikTok | 18. desember 2024

Þverpólitísk samstaða var um það á Bandaríkjaþingi að banna TikTok …
Þverpólitísk samstaða var um það á Bandaríkjaþingi að banna TikTok ef kínverskir eigendur TikTok myndu ekki selja samfélagsmiðilinn. AFP/Olivier Douliery

Hæstiréttur Bandaríkjanna mun úrskurða um það hvort að fyrirhugað bann við Tiktok í Bandaríkjunum standist stjórnarskrá Bandaríkjanna.

Hæstiréttur Bandaríkjanna mun úrskurða um það hvort að fyrirhugað bann við Tiktok í Bandaríkjunum standist stjórnarskrá Bandaríkjanna.

Dagblaðið Wall Street Journal greinir frá. 

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti undirritaði lög­ fyrr á árinu eftir að öldungadeildin samþykkti frumvarp sem þvingar ByteDance, móðurfélag TikTok, til að selja sam­fé­lags­miðil­inn á inn­an við ári ell­egar muni for­rit­in App store og Google play store ekki veita not­end­um aðgang að TikTok.

Bannið á að taka gildi 19. janúar á næsta ári og því hefur Hæstiréttur ákveðið að veita málinu flýtimeðferð.

Vegur bannið að tjáningarfrelsi Bandaríkjamanna?

Spurningin sem Hæstiréttur mun dæma um er hvort að bannið stangist á við fyrsta viðauka við stjórnarskrá sem tryggir m.a. tjáningarfrelsi.

TikTok og áhrifavaldar á miðlinum báðu Hæstarétt um að skera úr um það þar sem þeir segja að bannið skerði tjáningarfrelsi. 

Áfrýjunardómstóll í Washington úrskurðaði fyrr í þessum mánuði að lögin færu ekki gegn stjórnarskrá og margir töldu ólíklegt að Hæstiréttur myndi taka upp málið.

Tekur gildi degi fyrir embættistöku Trumps

Banda­rísk­ir og vest­ræn­ir emb­ætt­is­menn hafa löng­um varað við því að TikTok safni of mikið af gögn­um um not­end­ur og að kín­versk stjórn­völd hafi greiðan aðgang að þeim gögn­um.

Þá hafa sum­ir einnig sakað kín­versk stjórn­völd um að dreifa áróðri á sam­fé­lags­miðlin­um. Kín­versk stjórn­völd og TikTok hafna þeim ásök­un­um.

Bannið tekur gildi degi áður en Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, tekur við embætti en hann hefur lýst yfir efasemdum um bannið og sagt það aðeins til þess fallið að styrkja stöðu fyrirtækja eins og Meta.

mbl.is