„Mamma fékk taugaáfall þegar ég tók þessa ákvörðun“

Dagmál | 18. desember 2024

„Mamma fékk taugaáfall þegar ég tók þessa ákvörðun“

„Þetta var mikil upplifun og ævintýri, bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt,“ sagði Hannes Þór Halldórsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Íslands í fótbolta, í Dagmálum.

Hannes Þór, sem er fertugur, lagði skóna á hilluna haustið 2021 eftir afar farsælan feril þar sem hann var í lykilhlutverki hjá íslenska landsliðinu og fór á tvö stórmót með liðinu.

Mjög öruggur valkostur

Hannes Þór kom mörgum á óvart þegar hann gekk til liðs við Qarabag í Aserbaídsjan eftir heimsmeistaramótið 2018 í Rússlandi en hann kom til félagsins frá Randers í Danmörku þar sem hann hafði staðið sig mjög vel.

„Það voru allskonar orðrómar í gangi eftir HM og það var einn möguleiki, í Frakklandi, sem ég var að vonast til að myndi ganga upp,“ sagði Hannes.

„Qarabag var mjög öruggur valkostur. Þeir borguðu alltaf á réttum tíma og rétt staðið að öllu og ég reyndi að sjá allar jákvæðu hliðarnar á þessu. Á sama tíma var ég að rífa alla fjölskylduna upp, krakkarnir eins og fjögurra ára, og við bjuggum á æðislegum stað.

Mamma og pabbi voru rétt hjá okkur og mamma fékk taugaáfall þegar ég tók þessa ákvörðun. Mamma grátbað mig um að gera þetta ekki þannig að þetta var mjög kvíðavaldandi ákvörðun,“ sagði Hannes meðal annars.

Viðtalið við Hannes Þór í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Hannes Þór Halldórsson.
Hannes Þór Halldórsson. mbl.is/Unnur Karen
mbl.is