Arnór lét sænsku goðsögnina heyra það

Dagmál | 19. desember 2024

Arnór lét sænsku goðsögnina heyra það

„Það var ákveðinn sigur fyrir mig að ná að snúa þessu mér í hag,“ sagði Skagamaðurinn og knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Arnór Smárason í Dagmálum.

Arnór, sem er 36 ára gamall, lagði skóna á hilluna á dögunum en hann á að baki farsælan atvinnumannaferil í Hollandi, Danmörku, Svíþjóð, Rússlandi og Noregi.

Endaði sem hans maður

Sænska goðsögn­in Henrik Lars­son tók við stjórn­artaum­un­um hjá Hels­ing­borg þegar Arn­ór var á sínu öðru tíma­bili hjá fé­lag­inu í Svíþjóð en félagið vildi losna við Íslendinginn af launaskrá um tíma.

„Ég endaði tímabilið á því að vera hans maður, maðurinn hans Larsson, og það gekk allt upp,“ sagði Arnór.

„Ég var fyrsti maður á blað hjá honum og það komu tilboð í mig í lok gluggadagsins sem ég var mjög spenntur fyrir en þá hafði þeim snúist hugur. Hann neitaði mér um að fara og það var í eina skiptið sem ég lét hann heyra það,“ sagði Arnór meðal annars.

Viðtalið við Arnór í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Arnór Smárason og Henrik Larsson.
Arnór Smárason og Henrik Larsson. AFP/Karim Jaafar/Björn Lindgren
mbl.is