Verðbólgan stendur í stað

Vextir á Íslandi | 19. desember 2024

Verðbólgan stendur í stað

Tólf mánaða verðbólga mælist nú 4,8% og stendur í stað frá síðustu mælingu.

Verðbólgan stendur í stað

Vextir á Íslandi | 19. desember 2024

Verðbólgan mælist 4,8%.
Verðbólgan mælist 4,8%. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tólf mánaða verðbólga mælist nú 4,8% og stendur í stað frá síðustu mælingu.

Tólf mánaða verðbólga mælist nú 4,8% og stendur í stað frá síðustu mælingu.

Tólf mánaða verðbólga mældist síðast 4,8% og var það í fyrsta sinn í þrjú ár sem hún var undir 5% en það var í nóvember 2021. Þá mældist hún líka 4,8%.

Hagfræðideild Landsbankans spáði örlítilli lækkun verðbólgunnar eða úr 4,8% í 4,7% en hagfræðideild Íslandsbanka spáði óbreyttri verðbólgu.

Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis síðastliðna tólf mánuði mæl­ist 2,8%.

„Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2024, er 637,2 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,39% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 511,7 stig og hækkar um 0,37% frá nóvember 2024,“ segir í tilkynningu Hagstofunnar.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,5% (áhrif á vísitöluna 0,09%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 8,0% (0,14%).

mbl.is