Starfshópur rýnir í beitingu rafbyssu í vikunni

Vopnaburður lögreglunnar | 20. desember 2024

Starfshópur skipaður af dómsmálaráðuneytinu mun rýna í atvik sem gerðist á þriðjudaginn er lögreglan þurfti í fyrsta sinn að beita rafbyssu til að yfirbuga manneskju í aðgerðum sínum. 

Lögreglan þurfti að beita rabyssu til að yfirbuga manneskju vopnaða …
Lögreglan þurfti að beita rabyssu til að yfirbuga manneskju vopnaða hnífi á þriðjudag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Starfshópur skipaður af dómsmálaráðuneytinu mun rýna í atvik sem gerðist á þriðjudaginn er lögreglan þurfti í fyrsta sinn að beita rafbyssu til að yfirbuga manneskju í aðgerðum sínum. 

Starfshópur skipaður af dómsmálaráðuneytinu mun rýna í atvik sem gerðist á þriðjudaginn er lögreglan þurfti í fyrsta sinn að beita rafbyssu til að yfirbuga manneskju í aðgerðum sínum. 

Þetta staðfestir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is.

Hún segir að ráðuneytið hafi skipað starfshópinn en hlutverk hans er að yfirfara hvert tilfelli þar sem rafbyssa er notuð.

„Hópurinn mun koma saman og yfirfara málið sem þú vísar til,“ skrifar Helena aðspurð en í þessu til­felli þurfti að yf­ir­buga mann­eskju vopnaða hnífi.

mbl.is