Hárið í ár ætti að vera vel blásið

Snyrtivörur | 21. desember 2024

Hárið í ár ætti að vera vel blásið

Áberandi krullur, liðir, vel blásið hár eða slétt mínímalískt tagl eru hárgreiðslur sem eru flottar yfir hátíðarnar. Slétta hárið hefur verið meira áberandi síðustu ár en krullurnar en nú er komið að vel blásna Hollywood-hárinu eins og við höfum séð mikið af á rauða dreglinum.

Hárið í ár ætti að vera vel blásið

Snyrtivörur | 21. desember 2024

Hollywood-hárgreiðsla Kendall Jenner er fullkomin fyrir þennan árstíma.
Hollywood-hárgreiðsla Kendall Jenner er fullkomin fyrir þennan árstíma.

Áberandi krullur, liðir, vel blásið hár eða slétt mínímalískt tagl eru hárgreiðslur sem eru flottar yfir hátíðarnar. Slétta hárið hefur verið meira áberandi síðustu ár en krullurnar en nú er komið að vel blásna Hollywood-hárinu eins og við höfum séð mikið af á rauða dreglinum.

Áberandi krullur, liðir, vel blásið hár eða slétt mínímalískt tagl eru hárgreiðslur sem eru flottar yfir hátíðarnar. Slétta hárið hefur verið meira áberandi síðustu ár en krullurnar en nú er komið að vel blásna Hollywood-hárinu eins og við höfum séð mikið af á rauða dreglinum.

Ofurfyrirsætan Kendall Jenner hefur breytt ótt og títt um hárgreiðslu síðustu mánuði og hefur hún bæði litað það og stytt. Ljóst, blásið og liðað hárið er einstaklega hátíðlegt og passar vel við áberandi jólakjóla þegar tilefnið á við. Á tískupöllum Chanel var hárgreiðslan aðeins stelpulegri og kjörin fyrir þau sem vilja hafa sig til á stuttum tíma. Það var aðeins ein flétta til hliðar sem er jafnvel smá gamaldags.

Ofurfyrirsætan Kaia Gerber skartaði einnig einfaldri hárgreiðslu en það var liðað hár sem var síðan tekið aðeins frá andlitinu og fest að aftan. Þá má nota allar fínu spennurnar og klemmurnar sem eru alltaf fyrir þér í baðskápnum.

Ef þú ert meira fyrir rokk og ról mælum við með því að stela hárgreiðslunni af Angelinu Jolie, sem er áberandi og örlítið trylltar krullur. Þannig hári er tilvalið að skarta á partíkvöldi eins og á áramótunum.

Alvöru öflugur hárblásari frá HH Simonsen sem meistararnir nota. Hann …
Alvöru öflugur hárblásari frá HH Simonsen sem meistararnir nota. Hann heitir Nano Ion, fæst hjá Beautybar og kostar 76.492 kr.
Hitavörn frá Balmain sem verndar hárið fyrir hárblásurum, krullu- og …
Hitavörn frá Balmain sem verndar hárið fyrir hárblásurum, krullu- og sléttujárnum. Hún kostar 9.180 kr.
Angelina Jolie og hennar fullkomnu rokkuðu krullur.
Angelina Jolie og hennar fullkomnu rokkuðu krullur.
Dyson hármótunartæki fyrir alvöru blásið hár. Þrjár hraðastillingar og þrjár …
Dyson hármótunartæki fyrir alvöru blásið hár. Þrjár hraðastillingar og þrjár hitunarstillingar. Fæst í Elko og kostar 115.995 kr.
Með HH Simonsen Rod Vs5 geturðu bæði skapað djúpar hátíðarbylgjur …
Með HH Simonsen Rod Vs5 geturðu bæði skapað djúpar hátíðarbylgjur og náttúrulegar bylgjur í hárið. Fæst hjá Beautybarnum og kostar 28.350 kr.
Not Your Mother’s hárgel fyrir liðað og krullað hár sem …
Not Your Mother’s hárgel fyrir liðað og krullað hár sem kostar 2.199 kr.
Be Curly Advanced sjampó frá Aveda. Kostar 6.499 kr.
Be Curly Advanced sjampó frá Aveda. Kostar 6.499 kr.
Kaia Gerber með hátíðlega greiðslu þar sem hárið er tekið …
Kaia Gerber með hátíðlega greiðslu þar sem hárið er tekið frá andlitinu.
Hársprey með miklu haldi frá Got 2 B sem kostar …
Hársprey með miklu haldi frá Got 2 B sem kostar 1.469 kr.
Babyliss Pro Crimp vöfflujárn sem kostar 29.480 kr.
Babyliss Pro Crimp vöfflujárn sem kostar 29.480 kr.
Hárteygjur sem fást í Lyfju, þrjú stykki kosta 1.279 kr.
Hárteygjur sem fást í Lyfju, þrjú stykki kosta 1.279 kr.
Á tískusýningu Chanel var hárgreiðslan einföld og klassísk hliðarflétta. Þessa …
Á tískusýningu Chanel var hárgreiðslan einföld og klassísk hliðarflétta. Þessa greiðslu er auðvelt að leika eftir ef tíminn er naumur. Ljósmynd/Chanel
Glæsileg hárspenna með glitrandi steinum. Fæst hjá Sápu og kostar …
Glæsileg hárspenna með glitrandi steinum. Fæst hjá Sápu og kostar 2.990 kr.
Thickening Tonic frá Aveda. Þykkir hárið strax eftir fyrstu notkun …
Thickening Tonic frá Aveda. Þykkir hárið strax eftir fyrstu notkun frá rót til enda. Kostar 6.799 kr.
mbl.is