Óvæntar vísbendingar kynda undir sambandsorðróma

Poppkúltúr | 22. desember 2024

Óvæntar vísbendingar kynda undir sambandsorðróma

Einn vinsælasti rappari Bretlands, Central Cee, og áhrifavaldurinn Madeline Argy hafa verið meðal mest áberandi einstaklinga á samfélagsmiðlum undanfarið ár.

Óvæntar vísbendingar kynda undir sambandsorðróma

Poppkúltúr | 22. desember 2024

Central Cee og Madeline Argy þegar þau voru enn þá …
Central Cee og Madeline Argy þegar þau voru enn þá saman. Ljósmynd/Instagram

Einn vinsælasti rappari Bretlands, Central Cee, og áhrifavaldurinn Madeline Argy hafa verið meðal mest áberandi einstaklinga á samfélagsmiðlum undanfarið ár.

Einn vinsælasti rappari Bretlands, Central Cee, og áhrifavaldurinn Madeline Argy hafa verið meðal mest áberandi einstaklinga á samfélagsmiðlum undanfarið ár.

Bæði hafa þau náð gífurlegum árangri í heimalandinu og Central Cee tókst meðal annars að slá Spotify-metið fyrir vinsælasta rapplagið.

Madeline, sem er 24 ára áhrifavaldur og hýsir hlaðvarpið Pretty Lonesome, hefur byggt upp stóran fylgjendahóp á samfélagsmiðlinum TikTok með yfir 6,7 milljónir fylgjenda auk þess sem hún rekur vinsæla YouTube-rás. 

Parið byrjaði saman árið 2022 og varð samband þeirra strax að heitu umræðuefni, sérstaklega eftir að lagið „Doja“ koma út sem innihélt vísun í kynhneigð Madeline.

Eftir stormasöm sambandsslit í júlí síðastliðnum eru orðrómar nú komnir á flug um að þau séu byrjuð aftur saman. Aðdáendur hafa tekið eftir myndböndum á TikTok þar sem þau virðast hafa verið gripin glóðvolg saman á ný.

Fræg ástarflækja

Madeline Argy og Central Cee voru saman í rúm tvö ár áður en sambandi þeirra lauk í sumar. Sambandsslitin vöktu mikla athygli, enda hafði orðrómur um framhjáhald Central Cee með bandarísku rappstjörnunni Ice Spice gengið sem eldur um sinu á netinu.

Central Cee og Ice Spice á sviði á Wireless-tónlistarhátíðinni í …
Central Cee og Ice Spice á sviði á Wireless-tónlistarhátíðinni í Lundúnum. Ljósmynd/Instagram

Ice Spice og Central Cee höfðu verið mikið saman í kringum útgáfu á laginu þeirra, „Did It First“, sem olli miklum umræðum, bæði um samband þeirra og áhrifin á Argy.

Argy sagði frá því á sínum tíma að hún hefði fundið fyrir vanvirðingu og verið „notuð sem peð í PR-stríðinu“, eins og hún orðaði það

Hún lýsti því hvernig hún upplifði sambandsslitin sem bæði óvænt og særandi, en hún gaf skýrt til kynna að hún myndi ekki fara aftur í samband með Central Cee.

Nýjustu sögusagnir

Nýlega hafa hins vegar birst myndbönd á TikTok þar sem aðdáendur fullyrða að þeir hafi séð Madeline og Central Cee saman í Japan, þar sem hann kom fram á tónleikum nú á dögunum.

Engin staðfesting en mikil spenna 

Þó ekkert hafi verið staðfest af þeirra hálfu, eru aðdáendur beggja nú í óða önn að rýna í smáatriði til að reyna að komast að því hvort parið hafi ákveðið að reyna aftur. Sumir halda því fram að ný TikTok-myndbönd þeirra beggja gefi óbeinar vísbendingar um að samband þeirra sé hafið á ný.

Eins og búast mátti við, eru aðdáendur klofnir í skoðunum um hvort þetta sé góð hugmynd eða ekki. Margir hafa lýst yfir von um að þau geti náð sáttum og byggt upp samband sitt á ný. Aðrir hafa verið gagnrýnir og minna á þá erfiðleika sem komu upp í sambandinu áður, sérstaklega vegna framkomu Central Cee í sumar.

Fylgst verður með framvindu málsins á næstu vikum.

mbl.is