Segja fréttir af skilnaði ósannar

Sýrland | 23. desember 2024

Segja fréttir af skilnaði ósannar

Eiginkona fyrrum Sýrlandsforseta, Bashar al-Assad, sem var hrakinn frá völdum, hyggst ekki sækjast eftir skilnaði við hann að sögn rússneskra yfirvalda en greint hefur þó verið frá yfirvofandi skilnaði í tyrkneskum miðlum.

Segja fréttir af skilnaði ósannar

Sýrland | 23. desember 2024

Asma al-Assad ásamt eiginmanni sínum og fyrrum Sýrlandsforseta, Bashar al-Assad.
Asma al-Assad ásamt eiginmanni sínum og fyrrum Sýrlandsforseta, Bashar al-Assad. AFP

Eiginkona fyrrum Sýrlandsforseta, Bashar al-Assad, sem var hrakinn frá völdum, hyggst ekki sækjast eftir skilnaði við hann að sögn rússneskra yfirvalda en greint hefur þó verið frá yfirvofandi skilnaði í tyrkneskum miðlum.

Eiginkona fyrrum Sýrlandsforseta, Bashar al-Assad, sem var hrakinn frá völdum, hyggst ekki sækjast eftir skilnaði við hann að sögn rússneskra yfirvalda en greint hefur þó verið frá yfirvofandi skilnaði í tyrkneskum miðlum.

Breska ríkisútvarpið greinir frá. 

Tyrkneskir miðlar höfðu gefið því undir fót að eiginkona fyrrum Sýrlandsforsetans, Asma al-Assad, vildi slíta hjónabandi sínu og yfirgefa Rússland, en þar hafa hjónin dvalið síðan HTS-samtökin hröktu al-Assad frá völdum.

Ekki í samræmi við raunveruleikann

Greindu miðlarnir frá því að Asma vildi snúa aftur til London, þar sem hún fæddist og var ólst upp af sýrlenskum foreldrum sínum, og einnig að mikil höft væru á lífi hjónanna í Moskvu þar sem þau dvelja.

Talsmaður Kreml í Rússlandi, Dimitry Peskoy, upplýsti hins vegar á blaðamannafundi í dag að fréttirnar af hjónabandsskilnaðinum væru ekki í samræmi við raunveruleikann.

Þá neitaði hann einnig þeim fregnum að Bashar al-Assad væri haldið gegn sínum vilja í Moskvu og að allar eignir hans hefðu verið frystar.

Er ekki velkominn til Bretlands

Umræða um endurkomu fyrrum forsetafrúnnar til Bretlands er ekki ný af nálinni en fyrr í þessum mánuði sagði utanríkisráðherra Bretlands, David Lammy, á breska þinginu að hún væri ekki velkomin aftur til landsins.

Sagði hann hana vera refsiskylda manneskju og að hann myndi gera allt sem í valdi hans stæði til að tryggja að enginn fjölskyldumeðlimur Assad-fjölskyldunnar myndi búa í Bretlandi.

Vakti mikla forvitni

Asma al-Assad er í dag 49 ára en hún flutti til Sýrlands frá Bretlandi 25 ára gömul, árið 2000 og giftist eiginmanni sínum nokkrum mánuðum eftir að hann tók við af föður sínum sem forseti Sýrlands.

Hún hefur vakið mikla forvitni í vestrænum fjölmiðlum en Vogue-tímaritið skrifaði grein um hana árið 2011 þar sem hún var m.a. kölluð eyðimerkurrós og lýst sem frískustu forsetafrúnni. Vogue hefur þó fjarlægt greinina.

Hún hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa staðið við hlið eiginmanns síns á meðan sýrlensku borgarastyrjöldinni stóð yfir þar sem um 500.000 manns létu lífið en hann var þá sakaður um að hafa notað efnavopn gegn andstæðingum sínum.

Þá greindist hún með hvítblæði fyrr á þessu ári og hóf meðferð við sjúkdómnum í maí á þessu ári.

mbl.is