14 starfsmenn ráðuneytis drepnir

Sýrland | 25. desember 2024

14 starfsmenn ráðuneytis drepnir

Nýr innanríkisráðherra Sýrlands segir að starfsmenn ráðuneytisins hafi verið drepnir af mönnum sem studdu stjórn Bashars al-Assads, fyrrverandi Sýrlandsforseta, í Tartus-héraðinu í kvöld.

14 starfsmenn ráðuneytis drepnir

Sýrland | 25. desember 2024

Bashar al-Assad fyrrverandi forseti Sýrlands.
Bashar al-Assad fyrrverandi forseti Sýrlands. AFP

Nýr innanríkisráðherra Sýrlands segir að starfsmenn ráðuneytisins hafi verið drepnir af mönnum sem studdu stjórn Bashars al-Assads, fyrrverandi Sýrlandsforseta, í Tartus-héraðinu í kvöld.

Nýr innanríkisráðherra Sýrlands segir að starfsmenn ráðuneytisins hafi verið drepnir af mönnum sem studdu stjórn Bashars al-Assads, fyrrverandi Sýrlandsforseta, í Tartus-héraðinu í kvöld.

Mohammed Abdel Rahman innanríkisráðherra gaf út yfirlýsingu fyrr í kvöld þess efnis að 14 starfsmenn hefðu verið drepnir og 10 særðir þegar þeir voru að sinna störfum sínum við að „viðhalda öryggi og vernd“.

Fyrr í mánuðinum náðu uppreisnarmenn í Sýrlandi völdum yfir ríkinu og Assad flúði úr landi. Honum hefur verið lýst sem einum alræmdasta einræðisherra heimsins.

mbl.is