Helga um Óskar Hrafn og KR: „Sápuópera ársins“

Dagmál | 30. desember 2024

Helga um Óskar Hrafn og KR: „Sápuópera ársins“

„Af því að þú minnist á Óskar Hrafn, þá var það sápuópera ársins,“ sagði Helga Margrét Höskuldsdóttir, íþrótta­fréttakona á RÚV, í íþrótta­upp­gjöri Dag­mála þegar rætt var um Óskar Hrafn Þorvaldsson og KR.

Óskar Hrafn tók við sem þjálfari KR-inga um miðjan ágústmánuð eftir miklar hrókeringar en hann var fyrst ráðinn tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar, svo yfirmaður knattspyrnumála, síðar var svo tilkynnt að hann yrði Pálma Rafni Pálmasyni innan handar í þjálfarateyminu og að hann myndi taka við liðinu að tímabili loknu áður en hann var loksins tilkynntur sem þjálfari liðsins. 

Stólaskiptingar í Vesturbænu

„Allar þessar stólaskiptingar í Vesturbænum. Það voru allir að bíða eftir því sem var alltaf að fara að gerast einhvernveginn“ sagði Helga Margrét.

„Svo var greyið Pálma Rafni alltaf hent til og frá þarna,“ bætti Aron Elvar Finnsson, íþróttablaðamaður á mbl.is og Morgunblaðinu, meðal annars við.

Áramótaþátt og íþróttauppgjör Dagmála má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Óskar Hrafn Þorvaldsson. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
mbl.is