Stutt hlákuskeið í kortunum

Veður | 2. janúar 2025

Stutt hlákuskeið í kortunum

Einhver hláka er í veðurkortunum í dag og á morgun. Þetta segir Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvásérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Stutt hlákuskeið í kortunum

Veður | 2. janúar 2025

Gera má ráð fyr­ir ís­stífl­um í ám í ljósi kuldatíðar …
Gera má ráð fyr­ir ís­stífl­um í ám í ljósi kuldatíðar sem hef­ur verið um land allt. mbl.is/Óttar

Einhver hláka er í veðurkortunum í dag og á morgun. Þetta segir Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvásérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Einhver hláka er í veðurkortunum í dag og á morgun. Þetta segir Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvásérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Gera má ráð fyrir ísstíflum í ám í ljósi kuldatíðar sem hefur verið um land allt. 

Þó sé einhver hláka í dag og á morgun og því líkur á að stíflur minnki. Kólna taki þá aftur um helgina.

Hafa ekki áhyggjur af hláku

„Þetta er bara viðvarandi ástand sem á það til að vera viðvarandi um veturna á íslandi,“ segir Jóhanna.

Aðspurð hvort hlýnun í veðri hafi ollið áhyggjum um að vatn taki að flæða segir hún: „Þetta er bara mjög róleg hláka og stutt þannig að við höfum ekki áhyggjur af því.“

Um sé að ræða hefðbundið vetrarástand í ám, líkur séu á áframhaldandi ísstíflumyndun og möguleiki á krapaflóðum.

„Við fylgjumst bara með því en eins og staðan er núna þá er þetta bara svona eðlilegt vetrarástand en ekkert til þess að hafa miklar áhyggjur af.“

mbl.is