51% landsmanna er óánægt með þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar, þáverandi matvælaráðherra í starfsstjórn, að veita nýtt leyfi til veiða á langreyðum, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. 35% segjast hins vegar ánægð með ákvörðunina.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Dýraverndunarsambandi Íslands og Náttúruverndarsamtökum Íslands.
Þegar spurt var hvort fólk væri hlynnt eða andvígt því að hvalveiðar yrðu bannaðar með lögum sögðust 44% hlynnt slíku banni en 39% sögðust því andvíg.
„Þannig liggur fyrir að mun fleiri eru óánægð með ákvörðun um nýtt hvalveiðileyfi og sömuleiðis styðja marktækt fleiri landsmenn að hvalveiðar verði bannaðar með lögum,“ segir í tilkynningunni.
Könnun Maskínu fyrir Dýraverndarsamband Íslands og Náttúruverndarsamtök Íslands var gerð dagana 12. til 19. desember síðastliðinn, á meðan starfsstjórn Bjarna Benediktssonar var enn að störfum. Svarendur voru 2.062 talsins.
61% kvenna er óánægt með ákvörðun um nýtt hvalveiðileyfi, 63% íbúa höfuðborgarinnar sömuleiðis og 65% þeirra sem eru með háskólamenntun.
„Þegar rýnt er í niðurstöður könnunarinnar varðandi spurninguna hvort fólk sé hlynnt eða andvígt því að hvalveiðar verði bannaðar með lögum kemur í ljós að 53% kvenna lýsa sig hlynnt slíkri lagasetningu, 58% íbúa höfuðborgarinnar og 57% fólks með háskólamenntun,“ segir í tilkynningunni.