57 ára og aldrei litið betur út

Rauði dregillinn | 6. janúar 2025

57 ára og aldrei litið betur út

Leikkonan Nicole Kidman geislaði aldeilis á rauða dreglinum á Golden Globe-verðlaunahátíðinni. Útlit Kidman var langt frá því að vera látlaust heldur mjög dramatískt.

57 ára og aldrei litið betur út

Rauði dregillinn | 6. janúar 2025

Ljósmynd/AFP

Leikkonan Nicole Kidman geislaði aldeilis á rauða dreglinum á Golden Globe-verðlaunahátíðinni. Útlit Kidman var langt frá því að vera látlaust heldur mjög dramatískt.

Leikkonan Nicole Kidman geislaði aldeilis á rauða dreglinum á Golden Globe-verðlaunahátíðinni. Útlit Kidman var langt frá því að vera látlaust heldur mjög dramatískt.

Kidman klæddist silfurlituðum kjól frá franska tískuhúsinu Balenciaga. Kjóllinn náði yfir aðra öxlina, var opinn í bakið og með hárri klauf. Dramatíkinni lauk ekki þar heldur var hárið tekið upp og umfangið gert meira með hárlengingum. Skartið passaði vel við heildarútlitið en hún bar látlaust úr og svarta og silfurlitaða fiðrildaeyrnalokka.

Kidman nálgast sextugsaldurinn en hún er 57 ára gömul og er í þrusuformi. Kidman var tilnefnd fyrir hlutverk sitt í myndinni Babygirl

Ljósmynd/AFP
mbl.is