Guðmundur Marteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Bónuss, og Ingibjörg B. Halldórsdóttir hafa selt einbýlishús sitt við Hjálmakur í Garðabæ. Húsið var auglýst til sölu síðasta sumar og var ítarlega fjallað um húsið af því tilefni.

Um er að ræða 380,2 fm einbýli sem reist var 2008. Húsið var teiknað af Sigurði Hallgrímssyni arkitekt, en það var Hallgrímur Friðgeirsson sem sá um innanhússhönnunina. Húsið við Hjálmakur fór á sölu eftir að Guðmundur og Ingibjörg festu kaup á einstakri íbúð í Kópavogi sem Rut Káradóttir innanhússarkitekt hannaði á sinn einstaka máta.
Kaupendur Hjálmakurs 8 eru Kristján Ingi Mikaelsson, eigandi MGMT Ventures og Viska Digital Assets, og Þóra Karen Ágústsdóttir byggingarfræðingur. Þau greiddu 365.000.000 kr. fyrir húsið. Með í kaupunum fylgdu gluggatjöld, ljós og allar sérsmíðaðar innréttingar.
Smartland óskar þeim til hamingju með kaupin!