Gular viðvaranir taka gildi eftir hádegi

Veður | 15. janúar 2025

Gular viðvaranir taka gildi eftir hádegi

Gular viðvaranir taka gildi eftir hádegi á Breiðafirði, Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra.

Gular viðvaranir taka gildi eftir hádegi

Veður | 15. janúar 2025

Gular veðurviðvaranir taka gildi eftir hádegi.
Gular veðurviðvaranir taka gildi eftir hádegi. Kort/Veðurstofa Íslands

Gular viðvaranir taka gildi eftir hádegi á Breiðafirði, Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra.

Gular viðvaranir taka gildi eftir hádegi á Breiðafirði, Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra.

Á þessum svæðum verða sunnan og suðvestan 15-23 m/s og vindhviður geta náð yfir 35 m/s við fjöll. Á Breiðafirði tekur viðvörunin gildi klukkan 13, á Vestfjörðum klukkan 15 og klukkutíma síðar á Ströndum og Norðurlandi vestra.

Það verða sunnan og suðvestan 13-20 m/s en hvassara í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu seinnipartinn. Það verður rigning eða skúrir, en þurrt norðaustan til. Hitinn verður 3 til 9 stig.

Á morgun verður vestlæg átt 5-10 m/s á vestanverðu landinu með slyddu eða snjókomu og hita um frostmark, en stöku él verða seinnipartinn og það frystir. Austan til verða sunnan 8-13 m/s með rigningu með köflum en styttir upp síðdegis. Hitinn þar verður 3-8 stig en það kólnar undir kvöld með slyddu og spáð er talsverðri snjókomu austan til um nóttina.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is