Kínóa- og kasjúhnetusalat sem rífur í uppáhalds hjá Jönu

Uppskriftir | 15. janúar 2025

Kínóa- og kasjúhnetusalat sem rífur í uppáhalds hjá Jönu

Kristjana Steingrímsdóttir, alla jafna kölluð Jana, heilsukokkurinn og uppskriftahöfundur hefur mikið dálæti af bragðgóðum og matarmiklum salötum. Þetta salat er eitt af hennar uppáhalds, með kínóa, edamamebaunum, kasjúhnetum, kryddjurtum sem rífa í og fleira góðgæti.

Kínóa- og kasjúhnetusalat sem rífur í uppáhalds hjá Jönu

Uppskriftir | 15. janúar 2025

Kristjana Steingrímsdóttir, alla jafna kölluð Jana, hefur mikið dálæti af …
Kristjana Steingrímsdóttir, alla jafna kölluð Jana, hefur mikið dálæti af bragðgóðum og matarmiklum salötum. Samsett mynd

Kristjana Steingrímsdóttir, alla jafna kölluð Jana, heilsukokkurinn og uppskriftahöfundur hefur mikið dálæti af bragðgóðum og matarmiklum salötum. Þetta salat er eitt af hennar uppáhalds, með kínóa, edamamebaunum, kasjúhnetum, kryddjurtum sem rífa í og fleira góðgæti.

Kristjana Steingrímsdóttir, alla jafna kölluð Jana, heilsukokkurinn og uppskriftahöfundur hefur mikið dálæti af bragðgóðum og matarmiklum salötum. Þetta salat er eitt af hennar uppáhalds, með kínóa, edamamebaunum, kasjúhnetum, kryddjurtum sem rífa í og fleira góðgæti.

Hollustan í fyrirrúmi þegar grænmetið er tekið saman sem fer …
Hollustan í fyrirrúmi þegar grænmetið er tekið saman sem fer í salatið. Ljósmynd/Kristjana Steingrímsdóttir

Salatið er ómótstæðilega gott og matarmikið eitt og sér en líka ótrúlega ljúffengt með grilluðum kjúkling.

Kínóa- og kasjúhnetusalat

  • 2 bollar soðið kínóa
  • 1 bolli af edamame-baunum ( Jana notar frosnar og lætur þær þiðna í heitu vatni)
  • 1 - 2 bollar gulrætur, skornar í þunna strimla með mandolíni
  • 1 bolli agúrkusneiðar, skornar í tvennt
  • 1 bolli þunnt rifið rauðkál
  • ¼ bolli þunnt sneiddur rauðlaukur
  • ½ bolli saxað ferskt kóríander
  • ¼ bolli söxuð fersk mynta
  • blanda af sprettum og vorlauk
  • Rifinn börkur af sítrónu
  • 1 pk. af kasjúhnetum ristuðum með chili

Salatdressing

  • 1/2 bolli hnetusmjör
  • 3-4 msk. hrísgrjónaedik
  • 1 ½ msk. ferskur límónusafi
  • 4 msk. vatn, meira ef þið viljið þynnri sósu
  • 2 msk. sojasósa eða tamari-sósa
  • 1 msk. akasíuhunang
  • ½ - 1 msk. rifið ferskt engifer
  • 1/3 tsk. chili flögur eða eftir smekk

Aðferð:

  1. Hrærið allt saman sem á að fara í dressinguna í skál og notið það magn af vatni eins og ykkur finnst passa. Þið getið valið hvort þið viljið að dressingin á að vera þunn eða þykk.
  2. Sjóðið kínóað samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum og kælið.
  3. Skerið allt fyrir salatið og setjið í stóra skál, hellið dressingunni og ristuðu kasjúhnetunum yfir og blandið vel saman.
  4. Berið fallega fram eitt og sér eða meðlæti með því sem hugurinn girnist.

 

 

mbl.is