Húsnæði Bryggjunnar brugghúss auglýst til sölu

Heimili | 16. janúar 2025

Veitingastaðirinn Bryggjan brugghús lokaði á dögunum en nú er húsnæði staðarins komið á sölu. Um er að ræða 899 fm hæð sem er í húsi sem reist var 1947. Húsið sjálft var endurnýjað fyrir um áratug síðan en í húsinu eru skrifstofur á efri hæðunum. 

Fasteignamat húsnæðisins er 348.850.000 kr. og er brunabótamat örlítið hærra eða 350.700.000 kr. Óskað er eftir tilboði í húsnæðið. 

Eigandi húsnæðisins er félagið Bjarnar ehf. og er forráðamaður félagsins Einar Guðbjörnsson. 

Á dögunum greindi DV frá því að veitingastaðurinn Bryggjan brugghús væri lokaður sem olli áhyggjum hjá fólki sem átti gjafabréf á staðnum. Eigandi húsnæðisins rak ekki veitingastaðinn heldur var reksturinn í höndum annarra aðila. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Grandagarður 8

Húsnæðið við Grandagarð 8 er komið á sölu.

mbl.is