Tollahótanir Trumps vekja urg

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 21. janúar 2025

Tollahótanir Trumps vekja urg í Kanada

Kanadísk stjórnvöld munu bregðast ókvæða við reisi Donald Trump Bandaríkjaforseti tollamúr milli Bandaríkjanna og nágrannaríkisins með 25 prósenta innflutningstollum á kanadískar vörur.

Tollahótanir Trumps vekja urg í Kanada

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 21. janúar 2025

Á meðan allt lék í lyndi. Trump og Trudeau á …
Á meðan allt lék í lyndi. Trump og Trudeau á NATO-ráðstefnu í London í desember 2019. AFP/Nicholas Kamm

Kanadísk stjórnvöld munu bregðast ókvæða við reisi Donald Trump Bandaríkjaforseti tollamúr milli Bandaríkjanna og nágrannaríkisins með 25 prósenta innflutningstollum á kanadískar vörur.

Kanadísk stjórnvöld munu bregðast ókvæða við reisi Donald Trump Bandaríkjaforseti tollamúr milli Bandaríkjanna og nágrannaríkisins með 25 prósenta innflutningstollum á kanadískar vörur.

Frá þessu greindi kanadíski forsætisráðherrann Justin Trudeau í dag í kjölfar þess er Trump lét í veðri vaka að ofurtollur þessi gæti verið á næsta leiti og svo skammt undan sem í febrúar.

„Kanada mun bregðast við og þar er allt uppi á borðum,“ sagði Trudeau á blaðamannafundi og bætti því við að stjórnvöld í Ottawa, stjórnarsetri Kanada, kæmu til með að beita nágrannaríki sitt skjótum, áhrifaríkum og úthugsuðum mótleik og mæta hækkunum Trumps dal fyrir dal.

mbl.is