Donald Trump Bandaríkjaforseti mun náða þá sem tóku þátt í árásinni á bandaríska þinghúsið 6. janúar 2021.

Þessu greindi hann frá fyrir skömmu.
Þann 6. janúar 2021 réðust stuðningsmenn Trumps inn í bandaríska þinghúsið til að reyna að hnekkja úrslitum forsetakosninganna árið 2020. Fjölmargir hlutu dóma fyrir þátttöku sína í óeirðunum.
Trump hefur skrifað undir nokkrar forsetatilskipanir. Það gerði hann í hátíðarhöldum sem haldin voru í Capital One Arena í Washington D.C. Hann mun skrifa undir fleiri tilskipanir í nótt.
Hann undirritaði meðal annars tilskipun um að draga Bandaríkin úr Parísarsamningnum sem er samkomulag um loftslagsmál. Hann kveður á um að ríki skuli bregðast við til þess að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda, takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga og tryggja umtalsvert fjármagn til grænna lausna og aðstoð við ríki sem verða verst úti í breytingum.