„Nokkur dæmi um hús í óásættanlegu ástandi“

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 23. janúar 2025

„Nokkur dæmi um hús í óásættanlegu ástandi“

Fasteignafélagið Þórkatla hefur tilkynnt þremur aðilum að krafa sé gerð um endurskoðun á kaupverði vegna slæms ástands eigna í Grindavík sem þeir seldu félaginu. Nefnir fasteignafélagið þó að það hafi gengið frá kaupum á alls 932 eignum í Grindavík og í nær öllum tilfellum hafi kaupverð staðið óhaggað.

„Nokkur dæmi um hús í óásættanlegu ástandi“

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 23. janúar 2025

Fasteignafélagið Þórkatla segir að afar dæmi séu um að grípa …
Fasteignafélagið Þórkatla segir að afar dæmi séu um að grípa hafi þurft til endurskoðunar kaupverðs við kaup á eignum í Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fasteignafélagið Þórkatla hefur tilkynnt þremur aðilum að krafa sé gerð um endurskoðun á kaupverði vegna slæms ástands eigna í Grindavík sem þeir seldu félaginu. Nefnir fasteignafélagið þó að það hafi gengið frá kaupum á alls 932 eignum í Grindavík og í nær öllum tilfellum hafi kaupverð staðið óhaggað.

Fasteignafélagið Þórkatla hefur tilkynnt þremur aðilum að krafa sé gerð um endurskoðun á kaupverði vegna slæms ástands eigna í Grindavík sem þeir seldu félaginu. Nefnir fasteignafélagið þó að það hafi gengið frá kaupum á alls 932 eignum í Grindavík og í nær öllum tilfellum hafi kaupverð staðið óhaggað.

Afar fá dæmi séu því um að grípa hafi þurft til endurskoðunar kaupverðs við kaup á eignum í Grindavík.

Þetta segir í tilkynningu frá félaginu en segir þar enn fremur að af sjónvarpsfrétt Ríkisútvarpsins í gærkvöldi, þar sem rætt var við lögmann seljanda, hafi mátt skilja að umfang þessara mála væri mun meira.

Brunabótamat hækkaði um 10 milljarða

„Kaupverð eigna einstaklinga í Grindavík miðaðist við 95% af brunabótamati samkvæmt lögum sem Alþingi setti en seljendum gafst þó ráðrúm til þess að óska eftir hækkun brunabótamats hjá HMS [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun] í kjölfar hamfaranna. Margir nýttu sér þennan möguleika og hækkaði brunabótamat fasteigna í Grindavík um 10 milljarða króna á nokkrum mánuðum vegna þessa.

Í flestum tilfellum hefur hækkun brunabótamats verið réttlát og eðlileg. Nokkur dæmi eru þó um ósamræmi milli matsins og raunverulegs ástands eigna. Í slíkum tilvikum hefur félagið kallað eftir endurmati á brunabótamati frá HMS áður en afsalsgreiðsla er greidd,“ segir í tilkynningunni.

„Reyndist við nánari skoðun vera nær fokheld“

Þá er nefnt að mikil áhersla hafi verið lögð á að hraða kaupum á eignum Grindvíkinga og því hafi félagið ekki framkvæmt almennt hefðbundna skoðun fyrir gerð kaupsamninga heldur gert úttekt á þeim við afhendingu.

„Þó svo að í langflestum tilvikum hafi frágangur og skil eignanna verið í góðu lagi þá voru nokkur dæmi um hús í óásættanlegu ástandi. Ein fasteign sem seld hafði verið sem fullbúið hús reyndist við nánari skoðun vera nær fokheld.“

mbl.is