Sigurður Arnar Magnússon hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra á framkvæmdasviði hjá landeldisfélaginu Laxey í Vestmannaeyjum.

Fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu Laxeyjar að „Sigurður Arnar, sem er uppalinn í Vestmannaeyjum, lauk nýverið MS-gráðu í iðnaðar- og kerfisverkfræði frá The Ohio State University með áherslu á aðfangakeðjustjórnun og framleiðslukerfi.“
Þá hafi hann reynslu af verkefnastjórnun, ferlagreiningu og hefur unnið að þróun stafrænna lausna. „Með góða skipulagshæfni og færni í teymisvinnu mun Sigurður Arnar gegna mikilvægu hlutverki í uppbyggingu Laxey. Hann hefur einnig í gegnum íþróttir og störf sín öðlast dýrmæta reynslu af forystu og samvinnu,“ segir í tilkynningunni.
Sigurður Arnar hefur störf hjá Laxey í næstu viku.