„Ég veit ekki hvort ég megi segja þetta“

Dagmál | 24. janúar 2025

„Ég veit ekki hvort ég megi segja þetta“

„Þegar ég fæ að heyra það að ég sé tognaður þá hellast yfir mig allskonar tilfinningar,“ sagði Arnar Freyr Arnarsson, landsliðsmaður Íslands í handknattleik og leikmaður Melsungen í Þýskalandi, í Dagmálum.

Arnar Freyr, sem er 28 ára gamall, tognaði aftan í læri í vináttulandsleik gegn Svíþjóð í Kristianstad, viku áður en íslenska landsliðið hóf leik á HM í Króatíu, Danmörku og Noregi og þurfti af þeim sökum að draga sig úr leikmannahóp Íslands á mótinu.

Aldrei liðið jafn vel

Þetta er í fyrsta sinn sem Arnar Freyr meiðist alvarlega á ferlinum en hann vonast til þess að snúa aftur til æfinga með félagsliðinu sínu í febrúar.

„Ég held að fólk geri sér ekki almennilega grein fyrir því en allir leikmennirnir sem eru að spila á HM til dæmis eru að gera allt, yfir tímabilið, til þess að vera klárir í janúar,“ sagði Arnar Freyr.

„Ég veit ekki hvort ég megi segja þetta. Leikmenn sleppa stundum leikjum úti, til þess eins að vera heilir í janúar. Það er ekkert skemmtilegra en að spila fyrir landsliðið og þetta var mjög erfitt.

Þetta er annað mótið hans Snorra og maður fann það, um leið og maður mætti á æfingar, að andinn á æfingum var allt annar og mér hefur aldrei liðið jafn vel á landsliðsæfingum,“ sagði Arnar Freyr meðal annars.

Viðtalið við Arnar Frey í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Arnar Freyr Arnarsson.
Arnar Freyr Arnarsson. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is