Fyrir helgarbaksturinn er upplagt að baka þetta bananabrauð með yngri kynslóðinni og eiga saman skemmtilegar samverustundir. Bananabrauðið hans Eyrnaslappa hressir og lífgar upp á daginn. Svo er það líka svo gott nýbakað með smjöri og ilmurinn úr eldhúsinu með það er að bakast er ómótstæðilega góður.

Uppskriftina er að finna í Stóru Disney-uppskriftabókinni frá Eddu útgáfu.
Bananabrauð Eyrnaslappa
200 g hveiti, eða heilhveiti
1 tsk. matarsódi
1 tsk. allrahanda-krydd
100 g púðursykur
2 vel þroskaðir bananar
4 msk. olía
2 egg
4 msk. mjólk
1 tsk. vanilludropar
þurrkaðar bananaskífur
olía eða smjör til að smyrja formið
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C.
Smyrjið 23 cm lang form vel með smjöri eða olíu.
Blandið öllum hráefnum vel saman nema banönum.
Stappið bananana með gaffli og bætið út í blönduna að síðustu.
Hellið deiginu í formið og raðið þurrkuðum bananaskífum ofan á.
Bakið í 40 mínútur eða þar til prjónn sem stungið er ofan í kemur hreinn upp úr.
Berið fram með smjöri og osti.