Mest spennandi húsin til leigu á Snæfellsnesi

Á ferðalagi | 26. janúar 2025

Mest spennandi húsin til leigu á Snæfellsnesi

Á leigusíðunni AirBnb eru margar heillandi eignir til leigu, bæði hér á landi og út um allan heim. Snæfellsnesið hefur lengi þótt fallegur og draumkenndur staður og það er mikið til af alls konar bústöðum, íbúðum eða smáum húsum til leigu þar. 

Mest spennandi húsin til leigu á Snæfellsnesi

Á ferðalagi | 26. janúar 2025

Það er margt í boði fyrir þá sem vilja heimsækja …
Það er margt í boði fyrir þá sem vilja heimsækja Snæfellsnesið fallega. Samsett mynd

Á leigusíðunni AirBnb eru margar heillandi eignir til leigu, bæði hér á landi og út um allan heim. Snæfellsnesið hefur lengi þótt fallegur og draumkenndur staður og það er mikið til af alls konar bústöðum, íbúðum eða smáum húsum til leigu þar. 

Á leigusíðunni AirBnb eru margar heillandi eignir til leigu, bæði hér á landi og út um allan heim. Snæfellsnesið hefur lengi þótt fallegur og draumkenndur staður og það er mikið til af alls konar bústöðum, íbúðum eða smáum húsum til leigu þar. 

Sælukot er lítið og blámálað hús í hjarta Stykkishólms. Það er alltaf heillandi að gista í bænum, sérstaklega í þessu húsi sem býður upp á dásamlegt útsýni yfir Breiðafjörð. Þetta hús rúmar fjóra gesti. 

Sælukot er blámálað og heillandi hús í hjarta Stykkishólms.
Sælukot er blámálað og heillandi hús í hjarta Stykkishólms. Skjáskot/AirBnb
Lítið eldhús þar sem hægt er að matreiða allt það …
Lítið eldhús þar sem hægt er að matreiða allt það helsta. Skjáskot/AirBnb

Smáhraun er staðsett í Helgafellssveit á Snæfellsnesi steinsnar frá Stykkishólmi. Þarna færðu glæsilegt útsýni og er þetta tilvalinn kostur fyrir fjölskyldufólk. Í húsinu eru tvö svefnherbergi sem rúma fjóra.

Smáhraun er snyrtilegt og fallegt hús.
Smáhraun er snyrtilegt og fallegt hús. Skjáskot/AirBnb
Heillandi fyrir fjölskyldur.
Heillandi fyrir fjölskyldur. Skjáskot/Airbnb

Klöpp Lodge er glæsilegt og vandað hús í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Þarna geta átta gestir gist í fallega innréttuðu húsi með stórglæsilegu útsýni til sjávar og fjalla.

Klöpp er glæsilega innréttað hús.
Klöpp er glæsilega innréttað hús. Skjáskot/Airbnb
Húsið er með gistipláss fyrir átta manns.
Húsið er með gistipláss fyrir átta manns. Skjáskot/Airbnb


Hrísdalur er annað glæsilega innréttað hús við hestarækt á Snæfellsnesi. Húsið er með þremur herbergjum, saunu og þvottavél. Fullkomið fyrir fjölskylduna.

Hrísdalur er glæsilegt og smekklega innréttað.
Hrísdalur er glæsilegt og smekklega innréttað. Skjáskot/Airbnb
Hver vill ekki einkasaunu?
Hver vill ekki einkasaunu? Skjáskot/Airbnb

Speglahúsið er lítið en heillandi hús með heitum potti. Þarna upplifirðu ró, næði og er íslenska náttúran alltumlykjandi. Þetta er fyrir stóru tilefnin. Húsið er ekki staðsett á Snæfellsnesinu heldur nær Borgarbyggð en bíltúr á nesið er þó afar mikilvægur.

Speglahúsið á Snæfellsnesi er heillandi.
Speglahúsið á Snæfellsnesi er heillandi. Skjáskot/AirBnb
Það er ekki slæmt að sofa þarna á veturna.
Það er ekki slæmt að sofa þarna á veturna. Skjáskot/AirBnb
mbl.is