Nýr fiskistaður á Frakkastíg, Mar, lokkar nú til sín bæði Íslendinga og erlenda ferðamenn. Réttirnir eru smekklega bornir fram í koparpönnum.
Nýr fiskistaður á Frakkastíg, Mar, lokkar nú til sín bæði Íslendinga og erlenda ferðamenn. Réttirnir eru smekklega bornir fram í koparpönnum.
Nýr fiskistaður á Frakkastíg, Mar, lokkar nú til sín bæði Íslendinga og erlenda ferðamenn. Réttirnir eru smekklega bornir fram í koparpönnum.
Á Mar á Frakkastíg er starfsfólk í óðaönn að undirbúa kvöldið þegar blaðamaður hittir þá Tómas Þóroddsson og Óðin Birgi Árnason einn eftirmiðdag í vikunni. Þeir félagar eru báðir eigendur ásamt Árna Evert Leóssyni, en Óðinn ber ábyrgð á eldhúsinu sem yfirkokkur.
„Við opnuðum fyrst á Selfossi í júlí í fyrra og staðurinn sló í gegn. Þannig að þetta er í raun útibú hér í Reykjavík,“ segir Tómas, en báðir búa þeir yfir langri reynslu í veitingageiranum.
„Miðbærinn á Selfossi er svo spennandi að við ákváðum að opna þar sjávarréttastað inni í miðju landi, sem sumum fannst glapræði,“ segir Tómas og brosir.
„Það tókst rosalega vel og við opnuðum svo hér 12. desember. Við sérhæfum okkur í fiskréttum, enda er íslenski fiskurinn einstakur. Ég er líka með þá köllun að kenna yngri kynslóðinni að borða fisk; það vantar svolítið upp á það,“ segir Tómas.
„Desember gekk framar vonum og er kúnnahópurinn mjög blandaður; bæði Íslendingar og útlendingar. Hér var alveg troðfullt á aðfangadag, jóladag og gamlársdag. Það komust færri að en vildu,“ segir Óðinn.
„Við fáum hingað glænýjan fisk á hverjum degi og bjóðum upp á hráefni sem hentar best eftir árstíðum. Það sem er mjög vinsælt er stökkar gellur og þorskkinnar,“ segir Óðinn og útskýrir að gellurnar séu djúpsteiktar í smjöri.
„En í raun er vinsælasti rétturinn okkar forréttaplatti sem er með brot af því besta úr sjávarréttunum og er hann tilvalinn til að deila. Þar er humar, rækjur, túnfiskur, krabbaklær og fleira,“ segir Óðinn.
„Við berum flesta rétti fram í koparpönnum, sem er mjög skemmtilegt,“ segir Tómas.
„Svo erum við með einn lambarétt fyrir þá sem vilja ekki fisk,“ segir Óðinn.
Að sjálfsögðu er hægt að fá sér eftirrétt á Mar.
„Við erum með rabarbara- og eplapæ sem er líka borið fram í lítilli pönnu með vanilluís og möndluköku með bleikum glassúr, en með nýstárlegu tvisti. Við viljum hafa þetta svolítið íslenskt en aðeins búið að poppa þetta upp,“ segir Óðinn.
„Sumir segja að það að koma hingað sé eins og að koma heim í mat til mömmu en aðeins fínna. Það er tilvalið að bjóða ömmu og afa í gellur,“ segir Tómas.
„Já, þetta er þægilegt en með smá glamúr,“ segir Óðinn að lokum.
Pönnusteikt bleikja
Fyrir fjóra
Aðferð: