Gagnrýndur fyrir óviðeigandi brandara

Poppkúltúr | 27. janúar 2025

Gagnrýndur fyrir óviðeigandi brandara

Bandaríski leikarinn Timothée Chalamet, sem hlaut á dögunum tilnefningu til Óskarsverðlaunanna fyrir túlkun sína á tónlistarmanninum Bob Dylan í kvikmyndinni A Complete Unknown, brá sér í hlutverk gestastjórnanda Saturday Night Live síðastliðið laugardagskvöld.

Gagnrýndur fyrir óviðeigandi brandara

Poppkúltúr | 27. janúar 2025

Timothée Chalamet.
Timothée Chalamet. Samsett mynd

Bandaríski leikarinn Timothée Chalamet, sem hlaut á dögunum tilnefningu til Óskarsverðlaunanna fyrir túlkun sína á tónlistarmanninum Bob Dylan í kvikmyndinni A Complete Unknown, brá sér í hlutverk gestastjórnanda Saturday Night Live síðastliðið laugardagskvöld.

Bandaríski leikarinn Timothée Chalamet, sem hlaut á dögunum tilnefningu til Óskarsverðlaunanna fyrir túlkun sína á tónlistarmanninum Bob Dylan í kvikmyndinni A Complete Unknown, brá sér í hlutverk gestastjórnanda Saturday Night Live síðastliðið laugardagskvöld.

Var þetta í þriðja sinn sem Chalamet stýrir hinum sívinsæla gamanþætti.

Frammistaða Chalamet vakti kátínu hjá viðstöddum, ef marka má lófatak og hlátrasköll sem heyra mátti úr sjónvarpssal, en ein sena, þar sem Chalamet lék hóptímaþjálfara í bungee fitness, breytti þó andrúmsloftinu í salnum á augabragði og fékk viðstadda til að taka andköf og yggla sig.

Senan, sem nefnist Bungee, sýnir karakter Chalamet, þjálfara að nafni Nathaniel Latrine, biðja þátttakendur í hóptíma um að herma eftir fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, Jimmy Carter heitnum, sem allir gera með því að hanga í beltinu og þykjast vera látnir.

Chalamet hefur hlotið þó nokkra gagnrýni fyrir senuna, en fjölmargir hafa ritað athugasemdir undir Youtube-myndband af atriðinu.

„Einhver er á leið til helvítis,“ sagði einn netverji á meðan annar skrifaði: „Þetta var fyndið alveg þar til Jimmy Carter-setningin var sögð. Algjörlega út í hött og þvílík óvirðing. Og já, ég er með góðan húmor og elska þáttinn en þetta var mjög illa gert og allt of snemmt...ég vona að fjölskylda hans hafi ekki séð þetta.“

Carter var 39. forseti Bandaríkjanna og gegndi embætti á árunum 1977 til 1981. Hann lést þann 29. desember síðastliðinn, 100 ára að aldri.  

mbl.is