Styttra frá Frankfurt Hahn til Lúxemborgar en Frankfurt

Ferðaráð | 27. janúar 2025

Styttra frá Frankfurt Hahn til Lúxemborgar en Frankfurt

Það er fátt ergilegra en að lenda eftir langt ferðalag og þurfa svo að ferðast um langa vegalengd til þess að komast á áfangastað. Þrátt fyrir að nöfn einstakra flugvalla gefi til kynna hvaða borg þeir tilheyri þá þarf það ekki endilega að þýða að flugvöllurinn sé steinsnar frá borginni.

Styttra frá Frankfurt Hahn til Lúxemborgar en Frankfurt

Ferðaráð | 27. janúar 2025

Það er um að gera að íhuga vegalengd flugvallarins frá …
Það er um að gera að íhuga vegalengd flugvallarins frá borginni sjálfri og hvaða samgöngumöguleikar séu í boði. Rocker Sta/Unsplash

Það er fátt ergilegra en að lenda eftir langt ferðalag og þurfa svo að ferðast um langa vegalengd til þess að komast á áfangastað. Þrátt fyrir að nöfn einstakra flugvalla gefi til kynna hvaða borg þeir tilheyri þá þarf það ekki endilega að þýða að flugvöllurinn sé steinsnar frá borginni.

Það er fátt ergilegra en að lenda eftir langt ferðalag og þurfa svo að ferðast um langa vegalengd til þess að komast á áfangastað. Þrátt fyrir að nöfn einstakra flugvalla gefi til kynna hvaða borg þeir tilheyri þá þarf það ekki endilega að þýða að flugvöllurinn sé steinsnar frá borginni.

Hefurðu ferðast til Paris-Vatry-flugvallarins? Ef svarið er já, hefurðu eflaust komist að því að flugvöllurinn er í um 160 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni.

Svipaða sögu er að segja um Munich West-flugvöllinn, sem er í um 120 kílómetra fjarlægð frá Munich. Frankfurt Hahn er um 125 kílómetra frá Frankfurt og í raun er flugvöllurinn nær Lúxemborg. Sé ekki áhugi fyrir að enda á tveggja tíma rútuferð eftir flug er kostur að velja borg með nálægan flugvöll. 

Kastrup-flugvöllur í Kaupmannahöfn.
Kastrup-flugvöllur í Kaupmannahöfn. Daria Strategy/Unsplash

Þessir eru næstir áfangastöðunum sem þeir eru kenndir við

Af evrópskum flugvöllum er flugvöllurinn á Gíbraltar næst borginni sem hann er kenndur við. Hægt er að segja að vélarnar lendi nánast í miðbænum, aðeins í 1,4 kílómetra fjarlægð frá máríska kastalanum og markaðstorginu. Hægt er að taka rútu í miðbæinn sem tekur um fimm mínútur og ganga tekur um fimmtán mínútur.

Pisa International Airport á Ítalíu er byggður við miðbæinn. Aðeins í 1,5 kílómetra fjarlægð frá aðallestarstöðinni, en þrjá kílómetra frá miðbænum. Öllu skemmtilegra er fólksflutningabíllinn sem skutlar fólki á milli flugvallarins og aðallestarstöðvarinnar en ökuferðin tekur ekki nema fimm mínútur.

Sé ferðinni heitið til Eistlands gæti það glatt einhverja að Tallinn-flugvöllurinn er mjög nálægur miðbænum. Aðeins í fjögurra kílómetra fjarlægð frá gamla miðbænum tekur bílferðin ekki nema um fimmtán mínútur. 

Annað Eystrasaltsríki er með stutta vegalengd á milli borgar og flugvallar, en það er Litháen. Vilníus-flugvöllurinn er 5,9 kílómetrum sunnan af miðbænum. Strætóferðir aka beina leið á tíu mínútna fresti.

Paris-Charles de Gaulle, risastór og ruglingslegur flugvöllur.
Paris-Charles de Gaulle, risastór og ruglingslegur flugvöllur. Kevin Bosc/Unsplash

Hvaða flugvellir hafa bestu samgöngutengingarnar?

Líkt og í Písa hafa margir flugvellir fjárfest í góðum fólksflutningum. Lissabon-flugvöllur er góða tíu kílómetra frá miðborginni. Lest ekur farþegum á milli borgar og flugvallar á minna en tuttugu mínútum fyrir aðeins örfáar evrur.

Rétt fyrir utan flugstöðina á Malaga er lestarstöð. Ferðin er um tólf kílómetrar en C-1 línan kemst inn í borgina á aðeins tólf mínútum.

Frá flugvellinum í Zurich er hægt að komast inn í borgina á aðeins tíu mínútum á aðallestarstöðina Hauptanhof. Frá Kastrúp í Kaupmannahöfn er hægt að komast í miðbæinn á þrettán mínútum fyrir aðeins fimm evrur.

Að lokum, áður en rokið er í að panta Uber, er um að gera að íhuga hvaða kostir eru í boði sem geta jafnvel komist á áfangastað á styttri tíma með minni kostnaði og umhverfisáhrifum.

Euro News

mbl.is