„Það þarf auðvitað bara að leita betur“

Loðnuveiðar | 27. janúar 2025

„Það þarf auðvitað bara að leita betur“

„Þetta horfir ekki vel við og er auðvitað bara mikið áfall,“ sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binni í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, í Morgunblaðinu um helgina. Var hann inntur álits á niðurstöðum loðnumælinga sem gefa tilefni til að hugsanlega verði engar loðnuveiðar leyfðar í vetur eftir því sem Hafrannsóknastofnun hefur gefið út.

„Það þarf auðvitað bara að leita betur“

Loðnuveiðar | 27. janúar 2025

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir bráðabirgðaniðurstöður loðnumælingarinnar áfall.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir bráðabirgðaniðurstöður loðnumælingarinnar áfall. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

„Þetta horfir ekki vel við og er auðvitað bara mikið áfall,“ sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binni í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, í Morgunblaðinu um helgina. Var hann inntur álits á niðurstöðum loðnumælinga sem gefa tilefni til að hugsanlega verði engar loðnuveiðar leyfðar í vetur eftir því sem Hafrannsóknastofnun hefur gefið út.

„Þetta horfir ekki vel við og er auðvitað bara mikið áfall,“ sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binni í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, í Morgunblaðinu um helgina. Var hann inntur álits á niðurstöðum loðnumælinga sem gefa tilefni til að hugsanlega verði engar loðnuveiðar leyfðar í vetur eftir því sem Hafrannsóknastofnun hefur gefið út.

„Það þarf auðvitað bara að leita betur, það yrði þá ekki í fyrsta sinn sem loðna fyndist [við síðari leit]. Þeir fundu magn í haust sem var alveg við það að geta gefið út kvóta, nú finna þeir tvo þriðju af því og það er auðvitað ekki gott.

Loðnan er auðvitað rosalega erfiður fiskur við að eiga, en þetta er rosalegt áfall fyrir markaðinn, Asíumarkaðurinn er tómur og það er ekki gott að vera með vöru sem er stundum til og stundum ekki,“ segir Binni að skilnaði.

mbl.is