Veginum um Raknadalshlíð í Patreksfirði og Kleifaheiði hefur verið lokað vegna snjóflóða sem þar hafa fallið.

Talin er hætta á fleiri flóðum næstu klukkustundirnar.
Staðan verður að sögn lögreglu metin í fyrramálið og eru vegfarendur sem fara þessa vegi hvattir til að fylgjast með upplýsingum um veður og færð á umferdin.is.
Snjóflóð féll yfir veginn úr Raknadalshlíð snemma í morgun og greindi sérfræðingur Veðurstofu frá því í samtali við mbl.is að sérstaklega á Vestfjörðum gætu flóð fallið á vegi.