Daníel á Jungle hreppti Bláa Safírinn 2025

Uppskriftir | 28. janúar 2025

Daníel á Jungle hreppti Bláa Safírinn 2025

Alls tóku 34 barþjónar þátt í keppninni um Bláa Safírinn í ár og komust 10 stigahæstu keppendurnir áfram og kepptu til úrslita um hinn eftirsótta titil og 100.000 króna ferðavinning.

Daníel á Jungle hreppti Bláa Safírinn 2025

Uppskriftir | 28. janúar 2025

Hrafnkell Ingi Gissurason hreppti 3. sætið. Daníel Oddson á Jungle …
Hrafnkell Ingi Gissurason hreppti 3. sætið. Daníel Oddson á Jungle stóð upp sem sigurvergari og hreppti 1. sætið og Dagur Jakobsson á Apótekinu hlaut 2. sætið. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson

Alls tóku 34 barþjónar þátt í keppninni um Bláa Safírinn í ár og komust 10 stigahæstu keppendurnir áfram og kepptu til úrslita um hinn eftirsótta titil og 100.000 króna ferðavinning.

Alls tóku 34 barþjónar þátt í keppninni um Bláa Safírinn í ár og komust 10 stigahæstu keppendurnir áfram og kepptu til úrslita um hinn eftirsótta titil og 100.000 króna ferðavinning.

Úrslitakeppnin fór fram á Petersen Svítunni á fimmtudagskvöldið, 23. janúar síðastliðinn. Daníel Oddsson á Jungle stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins en hann keppti með drykkinn sinn Celery Chap.

Dagur Jakobsson lenti í 2. sæti með drykkinn The Jewel in the Crown og það var hann Hrafnkell Ingi Gissurarson á Skál! sem lenti í 3. sæti með drykkinn sinn Fennel Countdown.

Sigurvegarinn Daníel Oddsson var alsæll með sigurinn og ekki síst …
Sigurvegarinn Daníel Oddsson var alsæll með sigurinn og ekki síst vinningana. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson
Daníel Oddsson á Jungle stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins en …
Daníel Oddsson á Jungle stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins en hann keppti með drykkinn sinn Celery Chap. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson

Sigurvegarinn á bleiku skýi

Sigurvegarinn var á bleiku skýi eftir sigurinn enda hefur hann mikla ástríðu fyrir starfi sínu sem barþjónn og getur ekki hugsað sér að starfa við neitt annað. Daníel er 27 ára gamall og er yfirbarþjónn á Jungle Cocktailbar-bar.

Glæsilegur vinningsskjöldur.
Glæsilegur vinningsskjöldur. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson

„Ég byrjaði að vinna sem þjónn fyrir 10 árum og fann fljótt fyrir áhuga á kokteilagerð og barþjónamennsku. Ég byrjaði að vinna sem barþjónn í fullu starfi á Jungle og vann mig upp í yfirmannastöðu. Ég get ekki séð fyrir að gera neitt annað næstu árin,“ segir Daníel glaður í bragði.

Dómnefndina skipuðu:

  • Jónína Unnur Gunnarsdóttir - fyrrum forseti Barþjónaklúbbs Íslands
  • Þórir Steinn Stefánsson - Mekka Wines & Spirits
  • Adam Karl Helgason - Matar- og kokteilaspekúlant
  • Svavar Helgi Ernuson - Stjórnarmaður í Barþjónaklúbbi Íslands og einn eiganda á Tipsý kokteilbar.

Þeir tíu barþjónar sem kepptu til úrslita voru eftirfarandi:

  • Alexander Jósef Alvarado á Jungle með drykkinn Flo Rida
  • Allesandro Malanca á Skál með drykkinn Where's the green?
  • Dagur Jakobsson á Apótek með drykkinn The Jewel in the Crown
  • Daníel Oddsson á Jungle með drykkinn Celery Chap
  • Heimir Morthens á Drykk með drykkinn Mi-So-Hon-Ey
  • Hrafnkell Ingi Gissurarson á Skál með drykkinn Fennel Countdown
  • Jakob Alf Arnarson á Gilligogg með drykkinn Glowstone
  • Kristján Högni á Kalda Bar með drykkinn Hare Kristján
  • Patrekur Ingi Sigfússon frá Reykjavík Cocktails með drykkinn OK
  • Róbert Aron Garðarsson Proppé á Drykk með drykkinn In bloom
Dagur Jakobsson lenti í 2. sæti með drykkinn The Jewel …
Dagur Jakobsson lenti í 2. sæti með drykkinn The Jewel in the Crown. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson
Drykkurinn The Jewel in the Crown.
Drykkurinn The Jewel in the Crown. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson
Hrafnkell Ingi Gissurarson á Skál! sem lenti í 3. sæti …
Hrafnkell Ingi Gissurarson á Skál! sem lenti í 3. sæti með drykkinn sinn Fennel Countdown. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson
Fennel Countdown drykkurinn sem Hrafnkell Ingi Gissurarson hreppti 3. sætið …
Fennel Countdown drykkurinn sem Hrafnkell Ingi Gissurarson hreppti 3. sætið fyrir. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson
Alexander Jósef Alvarado á Jungle með drykkinn Flo Rida.
Alexander Jósef Alvarado á Jungle með drykkinn Flo Rida. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson
Patrekur Ingi Sigfússon frá Reykjavík Cocktails með drykkinn OK.
Patrekur Ingi Sigfússon frá Reykjavík Cocktails með drykkinn OK. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson
Róbert Aron Garðarsson Proppé á Drykk með drykkinn In bloom.
Róbert Aron Garðarsson Proppé á Drykk með drykkinn In bloom. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson
Jakob Alf Arnarson á Gilligogg með drykkinn Glowstone.
Jakob Alf Arnarson á Gilligogg með drykkinn Glowstone. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson
Kristján Högni á Kalda Bar með drykkinn Hare Kristján.
Kristján Högni á Kalda Bar með drykkinn Hare Kristján. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson
Allesandro Malanca á Skál með drykkinn Where's the green?
Allesandro Malanca á Skál með drykkinn Where's the green? Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson
Heimir Morthens á Drykk með drykkinn Mi-So-Hon-Ey.
Heimir Morthens á Drykk með drykkinn Mi-So-Hon-Ey. Ljósmynd/Ómar Vilhelmsson

Sviptir hulunni af uppskriftinni

Daníel sviptir hér hulunni af uppskriftinni að sigurdrykknum, Celery Chap, sem heillaði dómnefndina upp úr skónum.

„Ég hef gaman að óhefðbundnum bragðsamsetningum sem koma skemmtilega á óvart hvað þær fara vel saman. Celery og jarðarber er ein af þeim samsetningum,“ segir Daníel þegar hann er spurður út í innblástur sigurdrykkjarins.

Celery Chap

  • 45 ml jarðarberjainfjúsað Bombay Sapphire gin
  • 30 ml sellerí síróp
  • 22,5 ml límónusafi
  • 3x döss absinthe

Til skrauts:

  • Mintulauf ef vill

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið í kokteilhristara og hristið vel.
  2. Strenið síðan blöndunni gegnum sigti í viðeigandi glas á fæti og skreytið að vild.

 

 

 

 

mbl.is