Efast um að Trump hafi tromp á hendi

Dagmál | 28. janúar 2025

Efast um að Trump hafi tromp á hendi

Karl Garðarsson dregur mjög í efa að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi eitthvert tromp uppi í erminni til að koma á friði í Úkraínu. Hann segir að margir í Úkraínu haldi í vonina, en sjálfur sé hann ekki bjartsýnn á það.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það yrði eitt af forgangsmálum sínum sem forseti að koma á friði í stríðinu sem geisar í Úkraínu. 

Kröfur Rússa skýrar

Karl Garðarsson er kvæntur konu frá Úkraínu og hefur fylgst náið með framvindu mála. Hann segir að vart sé hægt að ímynda sér að fulltrúar þjóðanna tveggja fáist að samningaborðinu.

Pútín sagði í nýlegu sjónvarpsávarpi að kröfur Rússa væru alveg skýrar, svo þeir setjist niður til viðræðna. Að þeir haldi því landi sem þegar hefur unnist í stríðinu og meira til. Ríkisstjórn Úkraínu víki, rússneska verði viðurkennt sem tungumál og að Úkraína gangi aldrei í NATO. Karl segir þessar kröfur í raun jafngilda skilyrðislausri uppgjöf og langsótt að Úkraínumenn ljái máls á þessu.

Karl segir að Pútín Rússlandsforseti hafi í sama sjónvarpsávarpi rætt um mögulegan fund með Donald Trump og sagt að það væri fínt að hitta forseta Bandaríkjanna en Rússar myndu ekki víkja frá þessum kröfum, sem nefndar eru hér að ofan.

Innrásarstríðið rætt

Karl Garðarsson er gestur Dagmála í dag og ræðir þar hið blóðuga stríð sem geisað hefur í 1.069 daga eða frá því að skriðdrekar Rússa skröltu yfir landamæri ríkjanna 24. febrúar, 2022.

Hér að ofan er Karl spurður út í mögulega aðkomu Trumps að friðarumleitunum. Þátturinn er aðgengilegur áskrifendum Morgunblaðsins.

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP/Mandel Ngan
mbl.is