Engir trans innan banvænasta bardagaaflsins

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 28. janúar 2025

Engir trans innan banvænasta bardagaaflsins

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skrifaði í gær undir forsetatilskipun þess efnis að í Bandaríkjaher yrði ekki lengur stuðst við það sem forsetinn vísar til sem trans-hugmyndafræði.

Engir trans innan banvænasta bardagaaflsins

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 28. janúar 2025

Donald Trump Bandaríkjaforseti ræðir við blaðamenn um borð í Air …
Donald Trump Bandaríkjaforseti ræðir við blaðamenn um borð í Air Force One í gær. Blaðafulltrúi Hvíta hússins, Karoline Leavitt, stendur hjá. AFP/Mandel Ngan

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skrifaði í gær undir forsetatilskipun þess efnis að í Bandaríkjaher yrði ekki lengur stuðst við það sem forsetinn vísar til sem trans-hugmyndafræði.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skrifaði í gær undir forsetatilskipun þess efnis að í Bandaríkjaher yrði ekki lengur stuðst við það sem forsetinn vísar til sem trans-hugmyndafræði.

Um er að ræða framkvæmd sem gæti orðið umtalsvert áfall fyrir réttindi hinsegin fólks í Bandaríkjunum og jafnvel víðar.

Um borð í Air force One

Um borð í „Air Force One“-flugvél forsetaembættisins skrifaði forsetinn undir tilskipunina auk annarra forsetatilskipana, sem kveða meðal annars á um að byggð yrði bandarísk útgáfa af „Iron Dome“-eldflaugavarnarkerfi Ísraels, að hermönnum sem neituðu að láta bólusetja sig gegn Covid-19 og var vísað úr hernum, yrði gert kleift að snúa til baka og að víðtækar aðgerðir stjórnvalda gegn áætlunum sem miða að fjölbreytileika í hernum yrðu framlengdar.

Þjakað herinn

Trump sagði á þingi repúblikana í Miami að koma þyrfti trans-hugmyndafræði út úr hernum til að tryggja að Bandaríkin hefðu banvænasta bardagaaflið í heiminum.

Í tilskipuninni fullyrðir Trump að róttæk kynjahugmyndafræði sem farið hafi verið eftir til að friða aðgerðasinna hafi þjakað Bandaríkjaher. Segir hann einnig að mörg andleg og líkamleg heilsufarsvandamál samræmist ekki skyldum hermanna.

„Fullyrðing karlmanns um að hann sé í raun kona og krafa hans um að aðrir virði þá lygi er ekki í samræmi við auðmýktina og óeigingirnina sem krafist er af hermanni,“ sem segir í tilskipun forsetans.

Rýrir viðbragð og banvænleika hersins

Í annarri forsetatilskipun segir Trump að áætlanir hersins um fjölbreytileika grafi undan forystu, verðleikum og samheldni og rýri þannig viðbragð hersins og banvænleika hans.

Þá er varnarmálaráðuneytinu og hernum óheimilt að tala fyrir óamerískum kenningum sem segja að stofnskjöl Bandaríkjanna séu rasísk eða innihaldi kynrembu og að tala fyrir umræðu um kynjahugmyndafræði.

Tilskipanir þessar voru kynntar í annarri viku Trumps í Hvíta húsinu og sama dag og nýr varnarmálaráðherra hans, Pete Hegseth, var boðinn velkominn í Pentagon.

mbl.is