NATO og ESB þegja þunnu hljóði

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 28. janúar 2025

NATO og ESB þegja þunnu hljóði

Evrópusambandið (ESB) og Atlantshafsbandalagið (NATO) hafa ákveðið að tjá sig ekki um Grænlandsdeiluna eftir að dönsk stjórnvöld óskuðu eftir því við bandamenn sína að láta vera að tjá sig í kjölfar ummæla Trumps Bandaríkjaforseta. 

NATO og ESB þegja þunnu hljóði

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 28. janúar 2025

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur ákveðið að standa ekki í …
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur ákveðið að standa ekki í opinberum deilum við Trump Bandaríkjaforseta vegna Grænlands. Dönsk stjórnvöld hafa beðið ESB og NATO um að láta einnig af slíku opinberu orðaskaki. En embættismenn fara yfir málin á bak við tjöldin. Samsett mynd/AFP

Evrópusambandið (ESB) og Atlantshafsbandalagið (NATO) hafa ákveðið að tjá sig ekki um Grænlandsdeiluna eftir að dönsk stjórnvöld óskuðu eftir því við bandamenn sína að láta vera að tjá sig í kjölfar ummæla Trumps Bandaríkjaforseta. 

Evrópusambandið (ESB) og Atlantshafsbandalagið (NATO) hafa ákveðið að tjá sig ekki um Grænlandsdeiluna eftir að dönsk stjórnvöld óskuðu eftir því við bandamenn sína að láta vera að tjá sig í kjölfar ummæla Trumps Bandaríkjaforseta. 

Fram kemur í umfjöllun Financial Times (FT) að ákvörðun Dana um að láta það eiga sig að standa í opinberum deilum við Trump lýsi þeirri erfiðu stöðu sem sé uppi á meðal bandalagsþjóða Bandaríkjanna, því þær séu enn að reyna átta sig á breyttum aðstæðum og því hvernig best sé að tækla Trump.

Þá vísar FT til sinna heimildarmanna sem segja að bæði NATO og ESB hafi verið með í ráðum hvað varðar aðgerðir Dana. 

Trump og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, ræddu saman í síma í um 45 mínútur í liðinni viku. Því hefur verið lýst að mönnum hafi verið heitt í hamsi og að neyðarástand hafi skapast í dönskum stjórnmálum.

Trump hefur hótað að leggja tolla á Dani og hefur ekki útilokað að beita hervaldi til að ná Grænlandi á sitt vald.

Gerði grín að Dönum

Um helgina ítrekaði Trump í samtali við fréttamenn að hann myndi klófesta Grænland. Þá gerði hann grín að Dönum og sagði að þeir væru að nota „hundasleða“ til að verja Grænland.

Danskir og evrópskir embættismenn vonuðu að ummæli Trumps um Grænland hefðu einfaldlega verið taktík til að komast til frekari áhrifa á norðurslóðum á sama tíma og Kínverjar og Rússar reyna slíkt hið sama.

Líta málið alvarlegum augum

Undanfarna daga hafa embættismenn áttað sig á því að fólk ætti að líta málið alvarlegum augum.

„Að láta ekki mikið fara fyrir sér virðist vera besta leiðin gagnvart Trump. Vonandi verður eitthvað annað sem truflar hann,“ sagði einn háttsettur embættismaður hjá ESB í samtali við FT.

mbl.is