Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft sé í samningaviðræðum um að kaupa hluta af samfélagsmiðlinum TikTok.

TikTok aftengdi aðgang notenda sinna í Bandaríkjunum þann 19. janúar, skömmu áður en landsbundið bann við forritinu átti að taka gildi. Tólf klukkustundum síðar fengu bandarískir notendur aðgang að miðlinum á ný eftir að gildistöku laganna var frestað í 75 daga fyrir tilstilli Trumps.
Trump var í gær spurður hvort Microsoft væri í viðræðum um að kaupa TikTok og sagði Trump við fréttamenn: „Ég myndi segja já. Það er mikill áhugi á TikTok.“
Ein af hugmyndum Trumps er sú að eignarhaldið á TikTok skiptist jafnt á milli bandarískra og kínverskra eigenda.