Sindri Guðbrandur Sigurðsson náði 8. sæti í Bocuse d´Or, heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu, sem haldin var í Lyon dagana 26.-27. janúar.

Úrslitin voru tilkynnt í gær pomp og prakt klukkan 17.30 á íslenskum tíma. Alls kepptu 24 þjóðir til úrslita eftir að hafa unnið sér inn þátttökurétt í undankeppnum í sínum heimsálfum. Fulltrúi Frakklands vann til gullverðlauna, fulltrúi Danmerkur var í 2. sæti og fulltrúi Svíþjóðar í 3. sæti.
Eins og fram hefur komið á matarvef mbl.is er Bocuse d´Or virtasta matreiðslukeppni í heimi og eru þátttakendur meðal fremstu matreiðslumanna sinna landa. Keppnin er því hörð og miklar kröfur gerðar til keppenda.
„Sindri hafði 5 ½ klukkustund til þess að matreiða fiskrétt og kjötrétt fyrir 24 dómara. Afraksturinn var sannkallað listaverk og var annars vegar borinn fram á fallegum diskum og hins vegar á glæsilegu silfurfati. Allt gekk samkvæmt áætlun eins og við höfum æft margsinnis fyrir keppnina,“ segir Sigurjón Bragi Geirsson, þjálfari Sindra.
Sindri, Hinrik Örn Halldórsson, aðstoðarmaður hans og Sigurjón eru allir hæstánægðir með úrslitin. Þjálfari Sindra, Sigurjón, er fyrrum Bocuse d´Or keppandi 2023 og þekkir því vel til keppninnar. Dómari Íslands var Þráinn Freyr Vigfússon, fyrrum Bocuse d´Or keppandi, en hann tók þátt árið 2011.
Líkt og áður hefur komið fram hefur heimsmeistarakeppnin Bocuse d‘Or verið haldin síðan árið 1987 en fyrsti íslenski keppandinn tók þátt árið 1999. Það var Sturla Birgisson og náði hann fimmta sæti. Síðan þá hafa Íslendingar ávallt verið í tíu efstu sætunum en bestum árangri náði Hákon Már Örvarsson árið 2001 og Viktor Örn Andrésson árið 2017; þeir náðu báðir í bronsverðlaun.