Stormur, rigning og asahláka í kortunum

Veður | 28. janúar 2025

Stormur, rigning og asahláka í kortunum

Von er á talsverðum hlýindum með stormi, rigningu og asahláku víðs vegar um landið á föstudag og laugardag.

Stormur, rigning og asahláka í kortunum

Veður | 28. janúar 2025

Von er á talsverðum hlýindum með stormi og rigningu og …
Von er á talsverðum hlýindum með stormi og rigningu og asahláku víðs vegar um landið á föstudag og laugardag. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Von er á talsverðum hlýindum með stormi, rigningu og asahláku víðs vegar um landið á föstudag og laugardag.

Von er á talsverðum hlýindum með stormi, rigningu og asahláku víðs vegar um landið á föstudag og laugardag.

Þetta segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Hann segir að síðdegis í dag og á morgun verði rólegt veður á landinu. Það verði kalt og ekki mikil úrkoma og ágætis veður á margan hátt. Á fimmtudaginn fari hins vegar að draga til tíðinda.

„Á fimmtudaginn gengur í suðaustan hvassviðri og jafnvel storm sunnan- og vestanlands og þá má reikna með leiðinda skafrenningi á heiðum,“ segir hann.

Úrkomuspá klukkan 6 á laugardagsmorgun.
Úrkomuspá klukkan 6 á laugardagsmorgun. Kort/Veðurstofa Íslands

Tveggja stafa hitatölur fyrir norðan

Birgir segir að síðdegis á föstudag verði sunnan hvassviðri og víða stormur með talsverðum hlýindum og rigningu.

Hann segir að á laugardaginn muni víða sjást tveggja stafa hitatölur fyrir norðan þar sem vindur stendur af fjöllum og það megi búast við asahláku víða um land. Á laugardaginn er útlit fyrir hvassa sunnanátt framan af degi með mikilli rigningu á sunnanverðu landinu.

„Það má reikna með miklum leysingum á föstudag og fram eftir laugardegi en eftir það fer veðrið að skána. Það er ekkert óalgengt á þorranum að við sjáum svona umhleypingar.“

mbl.is