Súrsæt lífsreynsla að fara holu í höggi

Dagmál | 28. janúar 2025

Súrsæt lífsreynsla að fara holu í höggi

„Það man enginn annar eftir þessu af því að ég var ein,“ sagði atvinnukylfingurinn og þrefaldi Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir í Dagmálum.

Guðrún Brá, sem er þrítug, stendur á tímamótum á sínum ferli eftir að hafa tryggt sér takmarkaðan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á komandi keppnistímabili.

Ógeðslega gaman

Guðrún Brá fór holu í höggi í fyrsta sinn á ferlinum á Garðavelli árið 2015 en hún var þá ein að spila æfingahring á vellinum.

„Þetta var ógeðslega gaman en ógeðslega súrt líka,“ sagði Guðrún Brá.

„Það var búið að snúa vellinum við þannig að 1. holan var allt í einu orðin 10. holan. Það lét mig enginn vita af þessu og ég byrja sem sagt að spila á 1. braut. Á sjöttu brautinni slæ ég svo geggjað högg og ég vissi ekki alveg hvort boltinn hefði farið ofan í holuna eða ekki.

Ég geng af stað og þegar ég kíki ofan í holuna sé ég boltann. Ég lít upp og óska þess að einhver hafi séð þetta en því miður voru allir hinum megin á vellinum. Þetta er ekki gild hola í höggi því ég var ekki að keppa en hola í höggi er alltaf hola í höggi,“ sagði Guðrún Brá meðal annars.

Viðtalið við Guðrúnu Brá í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir. mbl.is/Hallur Már
mbl.is