Nokkur snjóflóð féllu yfir vegi á Vestfjörðum í gærkvöld og í nótt og er snjóflóðavakt Veðurstofunnar með aukið eftirlit vegna snjóflóðahættu.

Hulda Friðgeirsdóttir á snjóflóðavakt Veðurstofunnar segir að nokkur flóð hafi fallið á Kleifaheiði í gærkvöld og þar hafi bílar lent í vandræðum en að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, er búið að opna veginn eftir að honum var lokað í gærkvöldi.
Hulda segir að eitt flóð hafi fallið yfir veg í Súgandafirði og þá hafi í nótt borist tilkynning um lítið snjóflóð sem náði inn á veg um Súðavíkurhlíð. Hún segir að upptök flóðsins hafi verið rétt fyrir ofan veginn.
Snjóflóðahætta er á vegum um Súðavíkurhlíð og Raknadalshlíð í Patreksfirði.
„Við fylgjumst vel með veðrinu og gerum ráð fyrir að lækka hættustigið í dag þegar vindurinn gengur niður. Það er hins vegar mikil lausamjöll á svæðinu sem fýkur auðveldlega til. Það þarf því lítið til að snjórinn fari á hreyfingu,“ segir Hulda við mbl.is.