Tveir aðgerðasinnar frá samtökunum Just Stop Oil trufluðu sýningu á leikverkinu „Ofviðrið“ á West End í Lundúnum á mánudagskvöldið.

Verðlaunaleikkonan Sigourney Weaver, sem fer með hlutverk Prospero, var í miðri setningu þegar fólkið gekk á svið, sprengdi konfettí-bombu og lyfti upp fána sem á stóð: „Over 1.5 degrees is a globalshipwreck“.
Strax í kjölfarið var sýningin stöðvuð, en Weaver stóð upp og gekk af sviði og aðgerðasinnunum var fylgt í burtu af starfsmanni leikhússins.
Myndskeiði af gjörningum var deilt á samfélagsmiðlasíðu Just Stop Oil á X, áður þekkt sem Twitter, á mánudag.
Áhorfendur sýningarinnar voru lítt hrifnir af athæfinu en í myndskeiðinu má heyra þá púa og púa.