„Clark Kent“ handtekinn fyrir ölvunarakstur

Poppkúltúr | 29. janúar 2025

Bandaríski leikarinn Tom Welling, best þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni Smallville, var handtekinn aðfaranótt þriðjudags og ákærður fyrir að keyra undir áhrifum áfengis.

Tom Welling.
Tom Welling. Samsett mynd

Bandaríski leikarinn Tom Welling, best þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni Smallville, var handtekinn aðfaranótt þriðjudags og ákærður fyrir að keyra undir áhrifum áfengis.

Bandaríski leikarinn Tom Welling, best þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni Smallville, var handtekinn aðfaranótt þriðjudags og ákærður fyrir að keyra undir áhrifum áfengis.

Vefmiðillinn TMZ greindi fyrst frá.

Welling var handtekinn á bílastæði fyrir utan skyndibitastaðinn Arby’s í Yreka í Kaliforníu.

Vínandamagn í blóði leikarans mældist 0,8 prómill.

Welling, sem er 47 ára, giftur og tveggja barna faðir, skaust upp á stjörnuhimininn í þáttunum Smallville sem sýndir voru við miklar vinsældir á árunum 2001 til 2017. Welling fór með hlutverk Clark Kent.

mbl.is