Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt landið á föstudaginn en á morgun taka gular viðvaranir gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og á miðhálendinu.

Á vef Veðurstofunnar segir að veðurspár geri ráð fyrir lægðagangi, með hvössum sunnanáttum og stormi eða roki og úrhellisrigningu á sunnan- og vestanverðu landinu.
Spáð er asahláku víða á landinu og er fólk hvatt til að hreinsa vel niðurföll og skurði til að forðast vatnstjón. Þá má einnig búast við hálku á vegum.
Gul viðvörun tekur gildi um allt á föstudaginn klukkan 17 og gildir hún fram til klukkan 23 á sunnudagskvöld.