Matreiðslumeistarinn margverðlaunaði og góðkunni Snædís Xyza Mae Jónsdóttir hefur verið ráðin yfirmatreiðslumaður á Fröken Reykjavik Kitchen & Bar. Snædís er einn af fremstu kokkum landsins og það verður spennandi að fylgjast með henni á þessum einstaklega glæsilega veitingastað við Lækjargötuna að því er fram kemur í tilkynningu frá Hótel Reykjavík Sögu þar sem veitingastaðurinn er staðsettur.

Ferill Snædísar er glæstur en hún hóf ferilinn á Sushi Social, Apótekinu og Hótel Sögu þar sem hún útskrifaðist árið 2018. Einnig starfaði hún sem yfirmatreiðslumaður á Silfru hjá ION Hótel og stýrði eldhúsinu þar auk þess að taka við þjálfun Kokkalandsliðsins.
Snædís hefur sannað sig sem einn fremsti matreiðslumeistari landsins en hún hefur að auki víðamikla keppnisreynslu. Hún var aðstoðamaður Kokkalandsliðsins 2015 og tók þátt ásamt liðinu á Ólympíuleikum 2016. Hún var fyrirliði liðsins þegar það náði sínum besta árangri, 3. sæti á Ólympíuleikunum 2020 og var það í fyrsta skipti sem íslenska kokkalandsliðið komst á verðlaunapall. Hún tók við þjálfun landsliðsins í apríl 2023 og leiddi liðið á pall og náði 3. sæti auk þess að hljóta tvenn gullverðlaun og sigur fyrir „heita seðill“.
Það eru ófá verðlaunin sem Snædís hefur hlotið á ferlinum en hún hreppti 1. sætið í keppninni Eftirréttur ársins 2018, 1. sæti í Arctic Challenge keppninni, að auki hefur Snædís náð 4. sæti árið 2019 og 6. sæti árið 2023 í keppninni um titilinn Kokkur ársins. Nýverið var Snædísi matreiðslumeistara veitt Cordon Blue-orða Klúbbs matreiðslumeistara, en orðan er veitt þeim sem sýnt hafa fram á framúrskarandi starf í þágu matreiðslufagsins.
Snædís er fagmaður fram í fingurgóma sem hefur komið henni í fremsta flokk matreiðslumanna heims.Það verður spennandi að fylgjast með Snædísi á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar.
Fröken Reykjavík Kitchen & bar er staðsett á Hótel Reykjavík Sögu við Lækjargötu. Hótelið er með glæsilegri hótelum landsins og telur 130 herbergi. Á hótelinu er einnig líflegur bar, vínherbergi og heilsulind með líkamsræktaraðstöðu. Hótel Reykjavík Saga er hluti af Íslandshótelum sem eiga og reka 18 hótel með allt að 2.000 gistirými út um allt land auk funda- og ráðstefnuaðstöðu.