Jörundur selur íbúðina sem hann keypti 2007

Heimili | 29. janúar 2025

Jörundur selur íbúðina sem hann keypti 2007

Jörundur Ragnarsson leikari hefur sett íbúð sína við Brávallagötu í miðbæ Reykjavíkur á sölu. Íbúðin er þriggja herbergja risíbúð í þríbýlishúsi. Jörundur festi kaup á íbúðinni árið 2007. 

Jörundur selur íbúðina sem hann keypti 2007

Heimili | 29. janúar 2025

Jörundur Ragnarsson selur íbúðina sem er á besta stað við …
Jörundur Ragnarsson selur íbúðina sem er á besta stað við barnvæna götu í Reykjavík. Samsett mynd

Jörundur Ragnarsson leikari hefur sett íbúð sína við Brávallagötu í miðbæ Reykjavíkur á sölu. Íbúðin er þriggja herbergja risíbúð í þríbýlishúsi. Jörundur festi kaup á íbúðinni árið 2007. 

Jörundur Ragnarsson leikari hefur sett íbúð sína við Brávallagötu í miðbæ Reykjavíkur á sölu. Íbúðin er þriggja herbergja risíbúð í þríbýlishúsi. Jörundur festi kaup á íbúðinni árið 2007. 

Íbúðin er 86 fm en gólfflöturinn er meiri þar sem svefnhebergin, baðherbergið og eldhúsið eru að hluta til undir súð.

Jörundur fann ástina í örmum Magdalenu Björnsdóttur í heimsfaraldrinum árið 2021. Þau eignuðust son í maí í fyrra.

Íbúðin er sjarmerandi og skiptist í forstofu, borðstofu, stofu, tvö svefnherbergi eldhús og baðherbergi. Fallegt viðarparket er á öllum gólfflötum nema á baðherberginu þar sem gólfið er flotað og lakkað. 

Það kemur fram í fasteignaauglýsingunni að íbúðin hafi fengið gott viðhald síðustu ár. Tekið er fram að hverfið sé einstaklega barnvænt og gatan róleg einstefnugata.

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Brávallagata 24 

Opið er frá sjónvarpsstofunni og í borðstofuna.
Opið er frá sjónvarpsstofunni og í borðstofuna. Sölumyndir.is
Blátt veggfóður er í borðstofunni.
Blátt veggfóður er í borðstofunni. Sölumyndir.is
Íbúðin er þriggja herbergja risíbúð.
Íbúðin er þriggja herbergja risíbúð. Sölumyndir.is
Eldrauður ísskápur stendur í eldhúsinu.
Eldrauður ísskápur stendur í eldhúsinu. Sölumyndir.is
Heillandi þakgluggi í eldhúsinu hleypir birtunni inn.
Heillandi þakgluggi í eldhúsinu hleypir birtunni inn. Sölumyndir.is
Borðstofan er hlýleg.
Borðstofan er hlýleg. Sölumyndir.is
Rúmgott hjónaherbergi sem málað er í fjólubláum lit.
Rúmgott hjónaherbergi sem málað er í fjólubláum lit. Sölumyndir.is
Barnaherbergið er einnig rúmgott.
Barnaherbergið er einnig rúmgott. Sölumyndir.is
Í barnaherberginu er pláss fyrir tvö börn í koju og …
Í barnaherberginu er pláss fyrir tvö börn í koju og nóg af gólfplássi fyrir leik. Sölumyndir.is
Gólfið á baðherberginu er flotað en flísarnar á veggjum í …
Gólfið á baðherberginu er flotað en flísarnar á veggjum í ljósrauðum lit. Sölumyndir.is
Húsið er heillandi við einstefnugötu.
Húsið er heillandi við einstefnugötu. Sölumyndir.is
mbl.is