Karl Garðarsson, tengdasonur Úkraínu er ómyrkur í máli þegar kemur að aðstoð NATO og Evrópuríkja við Úkraínu. Hann segir NATO hafa brugðist Úkraínu. „Rússar skilja bara hnefann og valdið. Það er það eina sem þeir skilja," segir Karl þegar rætt er um áðurnefnda hernaðaraðstoð í Dagmálaþætti gærdagsins.

Hann sakar Bandaríkin og Evrópuríki um seinagang og að sú aðstoð sem sé veitt hafi komið Úkraínu í þá stöðu sem landið er nú. „Þeir ná að standa Rússana af sér en eru smám saman að tapa stríðinu.“ Karl segir rússnesk yfirvöld spila á hversu hikandi Evrópumenn séu. Kosningar í hinum ýmsu löndum tefji ákvörðunartöku og svo hóti Rússar þriðju heimstyrjöldinni ef þeim þykir að sér vegið.
Hann bendir á dæmi þar sem tekið hafi um ár að ræða og ljúka því ferli að koma alvöru skriðdrekum til Úkraínu og að sama skapi hafi dregist mjög á langinn að tryggja Úkraínuher öflugar flugvélar.
Hann er ákveðinn í þeirri afstöðu sinni að Rússar hyggi á frekari landvinninga og svarar hiklaust játandi þegar hann er spurður hvort hann eigi von á að Rússar kunni að efna til ófriðar víðar í Evrópu.
Þátturinn í heild sinni er aðgengilegur fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.