Þetta þurfa húseigendur að vita vegna veðursins

Veður | 29. janúar 2025

Þetta þurfa húseigendur að vita vegna veðursins

Mikil snjósöfnun hefur verið á höfuðborgarsvæðinu og snjóhengjur og grýlukerti myndast fram af þökum. Er það á ábyrgð húseigenda að koma í veg fyrir að hætta skapist af aðstæðunum. 

Þetta þurfa húseigendur að vita vegna veðursins

Veður | 29. janúar 2025

Snjóhengjur fram af húsþökum í Árbænum.
Snjóhengjur fram af húsþökum í Árbænum. mbl.is/Eyþór

Mikil snjósöfnun hefur verið á höfuðborgarsvæðinu og snjóhengjur og grýlukerti myndast fram af þökum. Er það á ábyrgð húseigenda að koma í veg fyrir að hætta skapist af aðstæðunum. 

Mikil snjósöfnun hefur verið á höfuðborgarsvæðinu og snjóhengjur og grýlukerti myndast fram af þökum. Er það á ábyrgð húseigenda að koma í veg fyrir að hætta skapist af aðstæðunum. 

Þetta segir Brynjar Þór Friðriksson, deildarstjóri á aðgerðasviði hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við mbl.is. Á komandi dögum er spáð hlýnandi veðri og gætu þá snjóhengjur í auknum mæli fallið af þökum húsa með tilheyrandi slysahættu.

Brynjar segir mikilvægt að byrja á því að koma í veg fyrir að fólk gangi fyrir neðan snjóhengjurnar og grýlukertin áður en reynt er að losa sig við þau.

Í einhverjum tilfellum þurfi að kalla til körfubíla og fá aðstoð til að ná þeim niður.

„Það er mjög mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að húseigandi er ábyrgur ef það kemur eitthvað uppá,“ bætir hann við.

Snjóþungt hefur verið í höfuðborginni.
Snjóþungt hefur verið í höfuðborginni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Möguleiki á miklum vatnselg

Brynjar varar einnig við möguleikanum á miklum vatnselg þegar snjórinn bráðnar. Þá sé mikilvægt að vera búinn að moka frá niðurföllum, til að mynda á bílaplönum og svölum.

„Bara að fara varlega, það er númer eitt, tvö og þrjú,“ segir hann og biðlar til fólks að sýna hvert öðru tillitssemi, til að mynda í umferðinni.

„Það er þung umferð á götunum þar sem það er snjór og bílar geta misst stjórn og farið út í skafla.“

„Það er mjög mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir …
„Það er mjög mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að húseigandi er ábyrgur ef það kemur eitthvað uppá,“ segir Brynjar. mbl.is/Ingó

Brunavarnir í snjóþyngslum

Aldís Rún Lárusdóttir, sviðsstjóri forvarnasviðs hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir mikilvægt að moka frá flóttaleiðum. Bæði hjá fyrirtækjum og á einkaheimilum.

Nauðsynlegt sé að geta opnað út á svalir eða aðrar flóttaleiðir ef ske kynni að eldur kvikni. 

„Þetta á þsvolítið til að gleymast og sérstaklega bakleiðir sem eru ekki notaðar til að komast inn í húsin. Það getur verið svalahurð eða auka stigahús á skrifstofum eða aftan til í skólum til dæmis,“ segir Aldís.

Nýfallin snjóhengja.
Nýfallin snjóhengja. mbl.is/Ingó
mbl.is