Fauk í flest skjól á Suðurnesjum

Veður | 30. janúar 2025

Fauk í flest skjól á Suðurnesjum

„Ökumenn þurftu á aðstoð björgunarsveita að halda í morgun þegar þessi hvellur skall á,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, í samtali við mbl.is um erfitt ástand sem hann kveður hafa staðið um tíma í morgun, hvort tveggja á Suðurstrandarvegi og Reykjanesbraut vegna þess illviðris sem þá skall á.

Vetur konungur minnir á sig víða um Norðurlöndin þessa dagana …
Vetur konungur minnir á sig víða um Norðurlöndin þessa dagana og hefur á ýmsu gengið í janúar, hvort tveggja á Íslandi og í Skandinavíu. Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

„Það var bæði hált og mjög hvasst sem hafði mest áhrif á tóma flutningabíla sem skrikuðu til og lentu í vandræðum með að komast leiðar sinnar,“ segir upplýsingafulltrúinn frá og bætir því við aðspurður að tugir björgunarsveitarfólks frá öllum björgunarsveitum Suðurnesjanna hafi komið bílstjórum og öðrum nauðstöddum til aðstoðar.

Björgunarsveitarfólk að vanda þolgott, þindarlaust, ótrautt og eljusamt við að …
Björgunarsveitarfólk að vanda þolgott, þindarlaust, ótrautt og eljusamt við að koma samborgurunum til aðstoðar hvort heldur sem er á fjöllum eða á malbikinu. Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

Einhvern tíma kveður Jón Þór hafa tekið að greiða úr málunum þar sem bílar hafi verið fastir víða og átak þurft til að koma umferðinni í sinn farveg á nýjan leik. „Þetta tók smá tíma en það hafðist,“ segir Jón Þór að lokum.

Aðeins rúmur sólarhringur eftir af janúar og svo er að …
Aðeins rúmur sólarhringur eftir af janúar og svo er að sjá hvað febrúar býður upp á. Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

Myndskeiðið sem fylgir fréttinni er runnið undan rifjum Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar.

mbl.is