Gæslan varar við aukinni sjávarhæð og slæmu veðri

Veður | 30. janúar 2025

Gæslan varar við aukinni sjávarhæð og slæmu veðri

Landhelgisgæsla Íslands hvetur til aðgæslu við sjávarsíðuna og á hafinu vegna stórstreymis og slæmrar veðurspár.

Gæslan varar við aukinni sjávarhæð og slæmu veðri

Veður | 30. janúar 2025

Veðurviðvaranir eru í gildi á landi og stormviðvaranir fyrir svo …
Veðurviðvaranir eru í gildi á landi og stormviðvaranir fyrir svo til öll spásvæði til sjávar. mbl.is/RAX

Landhelgisgæsla Íslands hvetur til aðgæslu við sjávarsíðuna og á hafinu vegna stórstreymis og slæmrar veðurspár.

Landhelgisgæsla Íslands hvetur til aðgæslu við sjávarsíðuna og á hafinu vegna stórstreymis og slæmrar veðurspár.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gæslunni. 

Slæm veðurspá er í kortunum næstu daga en Veðurstofan hefur gefið út veðurviðvaranir fyrir landið auk þess sem stormviðvaranir eru í gildi fyrir svo til öll spásvæði til sjávar.

Vindaspá Veðurstofunnar fyrir mið og djúp sem gildir kl. 6 …
Vindaspá Veðurstofunnar fyrir mið og djúp sem gildir kl. 6 laugardaginn 1. febrúar. Kort/Veðurstofa Íslands

Gæti farið umfram sjávarfallaútreikninga

Stórstreymi er á morgun, föstudag, og vegna slæmrar veðurspár má gera ráð fyrir að næstu daga geti áhlaðandi vegna ölduhæðar og lækkandi loftþrýstings aukið sjávarhæð umfram það sem sjávarfallaútreikningar gefa til kynna.

Landhelgisgæslan hvetur því til aðgæslu við sjávarsíðuna og á hafinu og að hugað verði að skipum og bátum í höfnum.

mbl.is