Enn versna veðurhorfur á landinu og hefur Veðurstofa Íslands gefið út appelsínugular viðvaranir fyrir morgundaginn.

Verða appelsínugulu viðvaranirnar í gildi á Breiðafirði, Suðausturlandi og á miðhálendinu en gular viðvaranir verða í gildi annars staðar á landinu.
Búist er við suðaustanstormi eða -roki á Breiðafirði, allt að 18-25 m/s á milli klukkan 13 og 22. Er talið að vindhviður geti orðið allt að 40-45 m/s á Snæfellsnesi. Þá er staðbundið foktjón líklegt og veður hættulegt ökutækjum, sem taka á sig vind.
Þá er suðaustan stórhríð spáð á miðhálendinu frá klukkan 13 og fram á miðnætti og verður „ekkert ferðaveður“ enda snjókoma með köflum eða skafrenningur og lítið skyggni.
Talsverðri eða mikilli rigningu er spáð á Suðausturlandi frá og með klukkan 17 auk mikilla leysinga. Er fólk hvatt til að hreinsa frá niðurföllum og fráveituskurðum til að forðast vatnstjón.